Til Lukku!

Elsku litli bróðir minn á afmæli í dag. Hann er þrítugur í dag. Skrítið hvað tíminn flýgur.
Hann er stórkostlegur söngvari og með þá fallegustu rödd sem ég hef heyrt.

Nú er ég búin að eyða 2 tímum í að reyna að koma inn einhverjum af lögunum hans inn í tónlistaspilarann en kem bara einu.
Neðst á síðunni til vinstri er líka pínku myndband með honum þar sem hann er að syngja í brúðkaupinu okkar.
Veit að þið nennið kannski ekki að hlusta á það, en ég get hlustað aftur og aftur og aftur InLove

Allavega... Uppáhalds bróðir minn. Elska þig ofur heitt og hlakka til að sjá ykkur skötuhjú, vonandi sem fyrst.

Billede 206

 

 

 

 

Beggi Dan og Hulla Dan... Langflottust.

 

 

 

Allar þær myndir sem ég hef undanfarið verið að drita inn af sjálfri mér með öðrum, eru teknar í brúðkaupinu mínu, þar sem ég er komin í prjónapeysu utan yfir brúðarkjólinn.
Hef ekki ósjaldan verið talin frekar smart.

Gott kvöld á ykkur.

 

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með brósa!

Ragga (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 16:35

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

til hamingju med bróann  gott ad eiga góda brædur..ég á eitt stykki slikan 

knus til thin og hafdu thad gott

María Guðmundsdóttir, 28.8.2008 kl. 16:56

3 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Til hamingju með bróa þinn.  Myndardrengur.  

Þú ert alltaf smart hippinn þinn.

12. sept???

Elísabet Sigurðardóttir, 28.8.2008 kl. 17:24

4 identicon

Til hamingju með bróðir þinn

Heiða Hrönn (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 17:32

5 Smámynd: Ragnheiður

Til hamingju með bróðurinn...það hefði mátt vera lengri búturinn með honum að syngja...flottur strákur

Ragnheiður , 28.8.2008 kl. 17:50

6 identicon

Til hamingju með brósan, þú smekklega stúlka

stinasveins (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 18:17

7 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Til hamingju með daginn. Allir að eiga afmæli í kringum þig!?  Bestu kveðjur

Rúna Guðfinnsdóttir, 28.8.2008 kl. 18:44

8 identicon

Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 18:48

9 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Innilega til hamingju með bróður þinn, hann er jafn gamall elsta barni mínu. Knús á þig mín kæra.

Ásdís Sigurðardóttir, 28.8.2008 kl. 20:13

10 identicon

Til hamingju með litla bróður.  Systur þínar hugsa líklega til hans á leið þeirra til Palestínu. Þær voru að hringja frá London að bíða eftir lokafluginu. Spennandi að fylgjast með þeim.

Knús á ykkur Hulla mín.

Ragna (IP-tala skráð) 28.8.2008 kl. 20:55

11 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Virðst vera svona afmælismánuður hjá þér eins og mér.  Til hamingju með bróður þinn Hulla mín, ég á líka svona uppáhaldsbróður hann er líka tónlistamaður.

Ía Jóhannsdóttir, 28.8.2008 kl. 21:40

12 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Til hamingu með litla bróðir Ég man ekki eftir honum flottur strákur eins og þið öll.Knús elskan.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 28.8.2008 kl. 22:45

13 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Fallegur bróðir og brúðurinn æði.

Til hamingju með hann.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.8.2008 kl. 11:44

14 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Gott að sjá þig á blogginu mín elska og mundu að göfugmenni er sá sem varveitir barnið í sjálfum sér og það getur þú  Hulla mín.

Anna Ragna Alexandersdóttir, 29.8.2008 kl. 12:01

15 Smámynd: Hulla Dan

Takk þið öll fyrir falleg orð

Hulla Dan, 29.8.2008 kl. 12:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband