15.okt

Dagurinn í dag auðkennist af dónalegu veðri eins og reyndar í gær og fyrradag. Skítaveður sem mér þætti allt í lagi að banna 3 daga í röð.

Strákarnir eru í haustfríi og haustfríin á þessu heimili auðkennast af einkar dásamlegum klæðnaði. Stutterma bolir og nærbuxur. Nema náttúrulega hjá frúnni. Þar eru síðar bleikar náttbuxur með ljós bleikum hundum á, hlýrabolur og kremaðir inniskór í notkun. Enda frúin búin að eiga frekar skítta daga. En hún fer til læknis á morgunn sem án efa mun sýna fullan áhuga á að lækna stelpuna.

Ég er mikið búin að velta fyrir mér hvort ég eigi að gera eitthvað varðandi tiltekt í dag og er satt að segja ekki að nenna því. Ætla aðeins að sjá hvernig dagurinn fer í mig.
Kannski að ég baki eina kökulufsu, held að það yrði vel þegið á þessu heimili. Verð að kíkja á hænurnar mínar og sjá hvort þær eigi egg handa mér.

Hér er búið að kveika á kerti handa tengdapabba mínum.
Í dag eru 5 ár síðan hann fór og það líður ekki sá dagur að við hugsum ekki til hans.
Söknuðurinn er ennþá mikill og minningarnar ljúfar.

Sendi mikið af kossum til allra heima.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Njóttu dagsins mín kæra.

Jenný Anna Baldursdóttir, 15.10.2008 kl. 10:22

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Guðrún Þorleifs, 15.10.2008 kl. 11:07

3 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

sendi knús og kram til tín inn í daginn tinn og ekki neitt vera ad eida deginum í ad taka til... Njóttu hans bara med börnunum tínum vid kertaljós og kannski einni kökulufsu....

Gudrún Hauksdótttir, 15.10.2008 kl. 12:00

4 Smámynd: María Guðmundsdóttir

já blessud slepptu tiltektinni, thad er bara til ad gera mann fúlan  

hafdu thad bara sem best og njóttu køkulufsunnar

María Guðmundsdóttir, 15.10.2008 kl. 12:51

5 Smámynd: Líney

Knús

Líney, 15.10.2008 kl. 13:36

6 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Njóttu dagsins, ekkert að taka til og baka, gangi þér vel hjá doksa

Kristín Gunnarsdóttir, 15.10.2008 kl. 15:55

7 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hvernig er dónalegur dagur?  Svona dumbungur og þoka eins og hér er á morgnanna.  Annars er gott að slá í eina klessu þegar maður nennir ekki að gera neitt annað.  Njóttu kvöldsins.

Ía Jóhannsdóttir, 15.10.2008 kl. 18:02

8 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Taka til? Til hvers? Það hefur enginn drepist úr rusli ennþá enda væri ég þá löngu dauð. Bakaðu bara köku og njóttu lífsins.

Helga Magnúsdóttir, 15.10.2008 kl. 20:04

9 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Vid gerdum heldur ekkert í dag, annad en ad vera saman. Ætladi ad poppa, en thad var svo ekki til poppmajs. Átum saltstengur í stadinn. Dóttla var í náttføtunum fram á kvøld, fór svo í bad og ný náttføt. Spiludum buzz, aftur og aftur. Ekkert smá rólegt og afstressandi. Naudsynlegt.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 15.10.2008 kl. 20:24

10 Smámynd: Tiger

Æi, það getur nú verið heilmikið notalegt að vera heimavið bara á náttfötum eða allavega lítt klæddur - eða bara uppi í rúmi að letast bara. En, alltaf hálf leiðinlegt ef maður er eitthvað lasinn..

Satt að hugurinn leitar alltaf aftur til þeirra sem við höfum misst - en þegar tíminn líður þá eru minningarnar yfirleitt alltaf orðnar ljúfar og fallegar þannig að þær hlýja manni í stað þess að hafa verið sárar og erfiðar í upphafi.

Knús og kram til ykkar allra ljúflingar og hafið það gott!

Tiger, 15.10.2008 kl. 22:07

11 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

fríin eru yndisleg...

vonandi ferðu að hressast kegling ;)

ég er líka að hugsa um að sleppa því að taka til og baka muffins í staðinn.. á engar hænur sem gefa mér egg samt.. þú kannski meilar mér nokkur

Guðríður Pétursdóttir, 16.10.2008 kl. 08:52

12 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Njóttu þess að vera til my darling. Skítt með allt hitt!

Rúna Guðfinnsdóttir, 16.10.2008 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband