Man það núna.

Það sem ég ætlaði að grobba mig yfir í nótt + að vera hætt að reykja og vera að fara að prjóna var þetta: Ég er næstum búin að kaupa allar jólagjafir fyrir næstu jól Wink dugnaðurinn gæti til dæmis ekki verið meiri. Það hefur nú bara aldrei áður komið fyrir að ég hafi verið svo til búin að kaupa allar gjafir áður en jólin væru öll og það var nú síðasti í jólum í gær.
Ég á faktískt bara eftir að kaupa fyrir börnin mín stór og smá.

Las þetta á visir.is áðan og bilaðist úr hlátri http://visir.is/article/20090106/FRETTIR01/39244022

 

Eigið góðan dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dóra

Já frábært hjá þér að hætta að reykja.. .

Jóla hvað..?  

Búni hvað ?

 Ef þetta er ekki sniðugt þá veit ég ekki hvað er sniðugt... Ef allir gerðu þetta þá væri sko lífið ljúft fyrir jólin...  

Eigðu góðan dag... kærleiksknús til þín

Dóra, 7.1.2009 kl. 07:19

2 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Ég seigi nu bara eins og Dóra, jóla hvað, buin hvað. Ég vildi að ég kæmi mer í jólagjafirnar snemma en það verður aldrey neitt úr því, hef sagt við sjálfa mig í mörg ár, nu verð ég snemma í því með jólagjafirnar, ætli þetta kallist leti, já sennilega. Dugleg ertu Hulla min

Kristín Gunnarsdóttir, 7.1.2009 kl. 07:53

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Váááá´....

Ía Jóhannsdóttir, 7.1.2009 kl. 08:41

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ertu ekki að fokking kidda mig?  Búin að versla jólagjafir.  Djísus.

Jenný Anna Baldursdóttir, 7.1.2009 kl. 08:43

5 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Ja hérna, ég hef reyndar heyrt að sumir af þeim sem hætta að reykja verði ofvirkir en aðrir verði vanvirkir.......ég er ein af þeim sem verð vanvirk

Til lukku með reykingastoppið

Sigrún Jónsdóttir, 7.1.2009 kl. 13:00

6 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

Frábært hjá þér Hulla að hætta að reykja bara til lukku með það...ég er enn að reyna að hætta en það bara gerist ekki neitt

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 7.1.2009 kl. 14:58

7 Smámynd: Halla Rut

Innilega til hamingju með að hætta að reykna því fátt er eins mikil böl.

Flott sem þú skrifaðir hér: http://veland.blog.is/blog/veland/entry/764743/#comment2083757 Ég er svo sammála þér.

Halla Rut , 7.1.2009 kl. 15:02

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

 búin ad kaupa fyrir næstu jól????? nei hættu nú alveg..!

en til hamingju med ad sleppa stautunum, gangi thér bara rosa vel med thad.

kvedja hédan

María Guðmundsdóttir, 7.1.2009 kl. 15:06

9 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Það klæðir þig vel að reykja ekki

Varðandi jólagjafirnar:

               passaðu bara að tína þeim ekki.

               mundu að þú ert búin að kaupa þær.

               ekki bæta meiru við af því að - þetta var svo ódýrt

                                                             - svo langt síðan þú keyptir

                                                             - af því að...

Knús á þig

Guðrún Þorleifs, 7.1.2009 kl. 15:46

10 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Það eru fimm ár síðan ég hætti að reykja síðast en tæp þrjú ár síðan ég hætti með nikótíntyggjóið .  Gangi þér vel.

Annars er þetta ekki mikið mál.  Ég hef hætt í 1 og 1/2 ár...ég hef hætt í 4 ár og einu sinni í 6 ár og svo núna í 5 ár, fyrir utan einn og einn mánuð á stangli í gegnum árin.  Þannig að þú sérð að þetta er auðvelt

Ég öfunda þig af jólagjöfum næstu jóla. Ég fer að kíkja og kaupa svona eina í mánuði

Rúna Guðfinnsdóttir, 7.1.2009 kl. 16:41

11 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Flott hjá þér að hætta að reykja og flott hjá þér með jólagjafirnar. Einstaka sinnum kaupi ég jólagjöf og jólagjöf ef ég rekst á eitthvað alveg sérstakt handa einhverjum alveg sérstökum.

Helga Magnúsdóttir, 7.1.2009 kl. 18:26

12 Smámynd: Líney

Dugleg þú,hver er galdurinn á bak við þetta?

Líney, 7.1.2009 kl. 19:15

13 identicon

Til hamingju elsku Hulla mín að vera laus við fjárans tóbakið. Ég óska þess eins,  að þú byrjir aldrei aftur - ALDREI.

Vonandi færðu fljótt lopann frá Heiðu. Við erum með jólaseríur sem átti að senda með lopanum til þín. Kannski eins gott að flýta sér að senda það því þú ert að verða með allt tilbúið fyrir næstu jól.  Kær kveðja og knús.

Ragna (IP-tala skráð) 7.1.2009 kl. 22:00

14 Smámynd: Dóra

Já vá segi eins og Guðrún Þorleifs.. passaðu þig á að týna þeim ekki eða gleyma ekki að þú hafir keypt þær...  Hér eru að droppa upp jólagjafir sem ég var víst búin að kaupa .. en gleymdi ... ja hérna hvað ég get verið klikk.. nú ég þá  afmælisgjafir til að grípa í.. Verða að hugga mig við það... knús

Dóra, 8.1.2009 kl. 08:15

15 Smámynd: Anna Ragna Alexandersdóttir

Anna Ragna Alexandersdóttir, 8.1.2009 kl. 10:26

16 Smámynd: Linda litla

Búin að versla jólagjafir fyrir næstu jól segirðu........ ætlarðu að gefa það sem þið fenguð í jólagjöf núna ??

Ég er bara fegin því að jólin eru búin.

Ég er ótrúlega stolt af þér Hulla, búin að vera reyklaus síðan 5 des !!! Vá, ég hætti á þrettándanum og ég er að klikkast, ætla samt að þrauka eins og ég get. Og vonandi kemst ég í gegnum þetta.

Knús á þig hetjan mín :o)

Linda litla, 9.1.2009 kl. 11:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband