Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2009

Fokk

Í gærkvöldi horfði ég bæði á Veðramót og Syndir feðrana.
Ég er búin að eiga þessar myndir í 2 mánuði en aldrei fundist rétti tíminn til að sjá þær.
veðramót er nokkuð góð og pínulítið lýsandi finnst mér... Lygar eru svo viðbjóðslega stór þáttur í okkar lífi og svo auðvelt að eyðileggja líf annarra með lygum, sögusögnum og hótunum.

Svo horfðum við á Syndir feðrana. Hún var erfið... Svakalega erfið.
Ég er eiginlega í molum eftir þessa mynd.
Menn sem fara af stað með svona hugsjónir, eins og að byggja drengjaheimili, hljóta að hafa stóra drauma og kannski að sumu leiti óþroskaða og barnalega en samt sem áður fallega.
Það hlýtur að vera góð tilfinning að fynnast maður vera búin að finna lausn á vandræðamálum æskunnar og vera svo viss í sinni sök að maður fer út í stórar og miklar framkvæmdir.
Ég ætla mér ekki að trúa eitt augnablik að tilgangurinn hafi verið eitthvað annað en góður.
Hugsið ykkur síðan, mörgum árum seinna að átta sig á að viðbjóðurinn og ógeðið sem áttu sér stað í þessu himnaríki áttu sér engin takmörk.
Litlum börnum misþyrmt bæði andlega og líkamlega og sálin í þeim stórskemmd á augnabliki.

Ef svo fer að þessum þjáðu mönnum verði ekki borgaðar þær bætur sem þeir fara fram á, ætla ég að segja mig úr mannlegu samfélagi.

Eigið góðar stundir.


mbl.is Breiðavíkurmálið í brennidepli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband