2.7.2008 | 20:50
Redding!
Nenni ekki að blogga núna, svo ég redda mér bara á smá myndum
Og Eiki kemur ekki til með að skilja skóna sína eftir úti aftur.
Já, já. Ef maður á að komast í heita sturtu, þá er þetta það eina sem blivar.
Pabbi minn og konan hans hún Ragna
Mamma mín með fallegu og prúðu dóttursyni sína.
Ótrúlegt hvað þeir líkjast stundum pöbbum sínum.
Þessi rós var á náttborðinu mínu þegar ég vaknaði, morguninn eftir "blóma" færsluna.
Ég er vel gift
Muniði þegar refurinn átt næstum allar hænurnar mínar og hanann??? Og Eiki rauk inn í ísskáp og reif öll eggin út og tróð þeim inní heimasmíðuðu útungunarvélina sína???
Þetta er s.s árangurinn
Jói minn að gera við bílinn okkar.
Er sem sagt að rífa í burtu gamla bensínslöngu.
Og alveg að verða búin að laga bílinn
Hann var að vinna drengurinn.
Þarna er hann t.d búinn að ná af slöngunni.
Bíllinn að verða klár fyrir Belgíu og Holland.
Þökk sé þeim feðgum
Athugasemdir
Takk fyrir myndirnar. Ég elska að skoða myndir.
Ég var ekki með myndavélina þegar ég var að hugsa um hvað það væri gaman að taka mynd af frábæru skónum hans Eika þar sem þeir stóðu svo krúttlegir á tröppunum en gleymdi því svo þegar ég var með myndavélina. Náttúrulega ekkert annað en elliglöp. En þú hefur tekið þessa líka fínu mynd. Svo eru þeir frábærir fræknu feðgarnir. Þessi stóri og sá litli sem er bara miníútgáfa af hinum.
Takk, Takk. Ég sendi knús á línuna.
Ragna (IP-tala skráð) 2.7.2008 kl. 21:01
Skemmtilegar myndir
Ía Jóhannsdóttir, 2.7.2008 kl. 21:19
Yndislegar myndir.
Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2008 kl. 21:28
Meira svona Hulla...gaman að skyggnast inní líf þitt....
Helga Nanna Guðmundsdóttir, 2.7.2008 kl. 22:56
Ég hef alltaf svo gaman af myndafærslum, endilega gerðu meria af þessu. Bestu kveðjur til þín í útlandið.
Linda litla, 3.7.2008 kl. 00:19
myndarfjølskylda sem thú átt
María Guðmundsdóttir, 3.7.2008 kl. 04:41
Flottar myndir af flottu fólki.
Á svo ad leggja lönd undir fót??
Knús á tig mín kæra.
Gudrún Hauksdótttir, 3.7.2008 kl. 05:21
Skórnir eru flottir og staðfesta listahæfileika þína.
Ertu að meina að þátt fyrir að þið séuð með 3 eða 4 vindmillur í nágreninu þá sé tæknin á þessu stigi í sveitinni? Ódýrast?
Fólkið þitt er flott enda þitt
Eiki veit hvað rómantík er
Gætu þessir kjúklingakrútt flokkast undir að vera kælikjúklingar
Heppin með viðgerðarliðið !!!
Knús
Guðrún Þorleifs, 3.7.2008 kl. 06:12
Þið eruð krúsídúllur. Þessir englar þínir eru æði. Segi það sama og Helga Nanna, meira meira....
Knús
Elísabet Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 10:11
ég var einu sinni alltaf með svona unga í hitabúri, það var yndislegt. rebbi át svo næstum allar hænurnar okkar þannig að við hættum að vera með hænur. erum samt að spá í að fá okkur hænur á næsta vori.
hafðu það gott !!!1
knús í krús
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 12:39
heyrðu, ég sé að þú et með íslenskar hænur hérna í danaveldi, hvernig fórstu að því ????
kh
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 13:26
Flottar myndir hjá þér.
Helga Magnúsdóttir, 3.7.2008 kl. 14:34
Takk þið öll
Steina: Ég fékk vinkonu mína til að koma með egg frá Íslandi og ungaði þeim út hérna
Þú segir bara til ef þig langar í einhverjar. Er komin með 8 unga og 4 á leiðinni núna.
Knús á ykkur.
Hulla Dan, 3.7.2008 kl. 15:15
Flottur karl hann pabbi þinn!!!!!! Gangi þér allt í haginn ljúfa!
Rúna Guðfinnsdóttir, 3.7.2008 kl. 17:28
Já nú er að sjá hvort það leynist hani í ungahópnum til að bjarga bústofninum. Hvað þurfa ungar að vera orðnir gamlir þegar á að vera hægt að kyngreina þá?
Kv. LalliP
Lárus (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 23:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.