Dugnaðurinn að drepa mig.

Ég á ekki til orð yfir yfirgengilegum dugnaði mínum.

Haldið ekki að ég hafi á -bæðevei- einum og hálfum tíma náð að ryksuga alla neðri hæðina og stigann upp (gafst upp þar) og soðið í 7 krukkur rifsberjahlaup og soðið í 4 flöskur rifsberja safa. Wizard

Svo er ég þess utan búin að klappa kisunum mínum, setja í þvottavé og þurrkara, búa um OG skúra yfir þvottahúsið.

Hversu langt getur maður eiginlega gengið án þess að gera útaf við sig???

Sultugerð

Djöfulsins dugnaður LoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig gastu verið svona fljót að þessu?, mér finnst bara nokkrar mínútur síðan við töðuðum saman á netinu og þú spurðir mig út í uppskriftina. Ég vona að uppskriftin hafi reynst þér vel - það lítur alla vega vel út sem á borðinu hjá þér er.  Farðu nú ekki alveg með þig á þessum ofurdugnaði.  Ef þú heldur þessu áfram þá þarf ég líklega að mæta hjá þér aftur og sjúkdómsgreina þig upp á nýtt.  Ha,ha, bara okkar á milli - þetta skilur enginn annar.
Stórt knús á línuna, skiptið því bróðurlega á milli ykkar.
Ragna, stjúpan í Kópavoginum.

Ragnas (IP-tala skráð) 4.8.2008 kl. 13:34

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta kallar maður sko dugnað, ég verð bara þreytt að lesa þetta allt  við hittumst næstum því um daginn í Sönderborg. Hvernig er veðrið í Dana veldi?? kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 13:52

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Helvíts dugnaður já, til hamingju með þetta.  Namminamm langar í sultu.

Jenný Anna Baldursdóttir, 4.8.2008 kl. 14:31

4 Smámynd: Hulla Dan

Ragna: Ætli þér finnist ég ekki bara svona fljót vegna tímamunsins hahaha
Ég tróð bara öllu inn í ísskáp eins og stendur í uppskriftinni þinni og vona bara að þetta eigi eftir að bragðast vel.
Ég ætla bara að halda mig við síðustu sjúkdómsgreiningu... Alla vega í bili

Ásdís: Veistu að ég var einmitt að læðupúkast á þinni síðu þegar þú skrifaðir kommentið.  
Já ég fékk að heyra alla söguna um fiðluleikarann og hitti hann meiri að segja í eigin persónu. Hér er rok og viðbjóðis veður og ekkert spennandi fram undan.

Jenný:

Hulla Dan, 4.8.2008 kl. 14:49

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hulla, mér finnst þá tími tilkomin að tengja, ekki satt?  en það er ekki hægt að biðja um bloggvini á minni síðu, hefur verið bilað lengi, vilt þú prófa hjá þér?? 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 14:52

6 Smámynd: Hulla Dan

Döön!

Hulla Dan, 4.8.2008 kl. 14:54

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Takk 

Ásdís Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 14:57

8 Smámynd: María Guðmundsdóttir

usss....vil ekki lesa sonna dugnadarblogg  guess why????

nei nei..segi svona,uni thér alveg gledinnar sem fylgir ad hafa tekid í gegn hjá sér..og halló! sulta og saft..nei hættu nú alveg..madur bara skammast sin hérna megin

María Guðmundsdóttir, 4.8.2008 kl. 16:23

9 Smámynd: Gísli Torfi

þú verður að fá þér " Sartúnus" hann gerir þetta allt saman frítt ..... " þessi þarna í uniforminu í fóstbræðrum

En því fagna allir góðir menn þegar það er kattþrifin kona á heimilinu.

Gísli Torfi, 4.8.2008 kl. 18:33

10 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hef ekki getað kvittað til að hrósa þér, reyni hér með aftur.

Gaman að vinir mínir eru orðnir vinir

Guðrún Þorleifs, 4.8.2008 kl. 18:57

11 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Hættu nú alveg Hugljúf.  Það er bannað að auglýsa svona ofurkonudugnað hér, bara til þess að maður fær meiriháttar minnimáttarkennd sko.

En vá hvað þessar krukkur eru girnilegar hjá þér, vildi að ég væri að koma.

Lovjú svítí pæ

Elísabet Sigurðardóttir, 4.8.2008 kl. 22:47

12 Smámynd: Hulla Dan

Maja: tú tarft sko ekkert ad skammast tín. Tetta gerist ekki oft.

Gísli: Tarf ad fá mér einn svona Sartúnus. Tetta er nefnilega ekki algengt get ég sagt tér og minn madur farinn ad óska eftir einni katttrifni. Ég reyndar líka, hihi.

Gudda: Mitt er titt og titt er mitt.

Beta: Vildi skooo líka ad tú værir ad koma

Hulla Dan, 5.8.2008 kl. 01:38

13 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þessi mynd er eins og mynd úr sögu Astrid Lindgren....svo eitthvað sveitó og sældarleg.

                        Hand Clapping

Rúna Guðfinnsdóttir, 5.8.2008 kl. 02:34

14 Smámynd: Hulla Dan

Mér leið líka frekar sveitó þegar ég var búin

Hulla Dan, 5.8.2008 kl. 05:54

15 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

DJ ertu dugleg, er ekki hægt að betla af þér rifsber, ekki fæ ég þau her við blokkarfjandan.

Kærleiksknus

Kristín Gunnarsdóttir, 5.8.2008 kl. 08:23

16 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

OK, maður verður bara að fara koma sér í gírinn eftir svona lestur, en sulta og svoleiðis vesen, ekki alveg mín deild. 

Sendi góðar kveðjur til þín vinkona.

Ía Jóhannsdóttir, 5.8.2008 kl. 08:58

17 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Ég hef einu sinni gert svona...reyndar bara tvær krukkur...en engan safa ...tvær krukkur voru það þó

Rúna Guðfinnsdóttir, 5.8.2008 kl. 08:58

18 Smámynd: Guðbjörg Oddsdóttir

Það er gott að enda sumarfríið með svona stæl Hulla mín.  Ég sakna enskis úr Grundartjörninni nema rifsberjarunnanna og rabbabarans, svo nú verð ég bara að versla sultuna mína úti í búð.

Guðbjörg Oddsd.

Guðbjörg Oddsdóttir, 5.8.2008 kl. 13:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband