Hlakka svo til :)

Á morgunn er uppáhalds dagurinn  minn á þessu ári, hingað til Smile 
Stóra litla systir mín er að koma í heimsókn til okkar og ætlar að vera hjá okkur í að minnsta kosti 2 vikur.
Gleði mín er ómælanleg og þið trúið því ekki hvað Eika hlakkar til að losna frá eldamennskunni FootinMouth
Systir mín er nefnilega ógeðslega góður kokkur og ein af þeim sem getur eldað stórkostlega máltíð úr engu, svo við sjáum fram á sparnað í þokkabót Wink 
Á meðan hún eldar ætla ég bara að vera skemmtileg (því það er mín sérgrein) svo henni leiðist ekki á meðan hún stendur við eldavélina.
Ég er svo heppin að fyrri vikuna er ég bara á kúrsus og er komin heim um 3 og svo fæ ég frí helgi og seinni vikuna er ég bara að vinna 2 daga svo það verður nóg að gera við að kjafta og spá í bolla og tarot...
Ég var búin að vera að monta mig á að hér væri komið vor og heillaði hana til dæmis smá upp úr skónum, daginn eftir fór að snjóa hjá okkur og svo er búið að hagla hérna daginn út og inn.
Nú held ég hins vegar að það sé að rætast úr þessu veðri.
Allavega er spáin fyrir næstu 5 dagana ekkert nema fín. 9° og upp í 14° í næstu viku.
Hugsa að ég kaupi bugles og bjór svo við getum setið úti í blíðunni.

Hafið það áfram gott krúttin mín :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Góða skemmtun með stóru systur

Sigrún Jónsdóttir, 29.3.2009 kl. 15:33

2 Smámynd: María Guðmundsdóttir

en gaman ad heyra, thad er svooooooooo gaman ad fá góda gesti   vonandi fáidi bara rosalega gott vedur, allavega spáir asskoti gódu næstu viku.

Hafdu thad gott krúsin min, og njóttu vikunnar.

María Guðmundsdóttir, 29.3.2009 kl. 16:23

3 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ekki spurning vorið er komið Hulla!  Bugles hvað ég vildi að það fengist hér. ER stundum heppin og fæ það í Þýskalandi.   Njóttu samveru við systur þína, ómetanlegar stundir. 

Ía Jóhannsdóttir, 29.3.2009 kl. 16:32

4 Smámynd: Hulla Dan

Takk þið dásemdar konur. Ætla þvílíkt að njóta þess að hafa nornina mína hjá mér :)

Hulla Dan, 29.3.2009 kl. 16:39

5 Smámynd: Líney

Til hamingju með  þetta  og njóttu samverunar  með systur  þinni,þú skemmtir  á meðan hún eldar,ekki amalegt  það knús   annars  til þín við hittumst vonandi næst  þegar leið mín liggur til Dk

Líney, 29.3.2009 kl. 18:05

6 identicon

Hæ snúlan mín.

Vona þið systur eigið eftir að njóta tímans í botn :)

knúsí knús

Linda (IP-tala skráð) 29.3.2009 kl. 20:54

7 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með þetta.  Algjörlega frábært.

Jenný Anna Baldursdóttir, 29.3.2009 kl. 22:01

8 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

mmm þrífur hún líka..? ég væri til í að fá einhvern til mín í heimsókn svona sem eldar.. já og jafnvel þrífur líka bara

hafðu það betra en frábært

Guðríður Pétursdóttir, 30.3.2009 kl. 08:00

9 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Það verður örugglega gaman hja ykkur systrum. Knus

Kristín Gunnarsdóttir, 30.3.2009 kl. 08:02

10 identicon

Mikið rosalega sendi ég ykkur öllum stórt knús.

Ragna (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 17:56

11 identicon

Hæ Hulla míns, gaman að sys c að koma út, það varður frábært hjá ykkur.

En Hvað er Marsvín, samkvæmt minni þekkingu er það hvaltegund ekki ert þú með svoleiðis?  Meintir þú ekki eitthvað annað????

Verð að fá að vita þettað.... NÚNA.. :)

En hafðu það gott knús.   

Bína (IP-tala skráð) 4.4.2009 kl. 22:43

12 identicon

sæll og sæl
vantar alveg símanr hjá ykkur:) glataði símanum mínum og öllum nr. getið sent það á netfangið mitt..bjarni@bonus.is
Kv Bjarni

Bjarni (IP-tala skráð) 5.4.2009 kl. 14:35

13 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Kveðja til ykkar og Laugu frá Tjékklandi

Guðrún Þorleifs, 6.4.2009 kl. 19:45

14 Smámynd: Linda litla

Frábært, þetta verður æðislegt hjá ykkur...... eða er hún farin ?? Ég vona að það hafi verið gaman hjá ykkur systrunu.

Gott að kíkja hérna við , er ekki búin að vera sú duglegasta að kíkja á bloggin undanfarið.

Hafðu það gott Hulla mín og njóttu vorsins ;o)

Linda litla, 14.4.2009 kl. 11:18

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband