Spuni

Í síðustu viku lék ég í spuna verki. Það er eitt það erfiðasta sem ég hef gert. Og ég hef gert margt sem er erfitt.

Þar sem ég er bundin þagnarskyldu mun ég skrifa í rósum... þær eru í þessu tilfelli alsettar þyrnum Crying

Ég er kölluð út tvö kvöld í röð til að sitja fasta vakt hjá konu sem er lítið eldri en ég.
Konu sem er 36 kg og mikið illa farin eftir margra ára misnotkun á áfengi og sennilega alskonar lyfjum líka.
Konu sem getur ekki gengið, vegna afleiðinga lífernisins.
Konu sem á 2 syni sem hún hefur ekki séð, guð má vita hvað lengi.
Konu sem gerði sér enga grein fyir að synir hennar eru 23 og 29 ára, en ekki 9 og 15 ára.
Konu sem var allveg viss um að nú væri ári 1995
Konu sem virðist ekki eiga sama rétt og við hin, í hinu frábæra danska heilbrigðiskerfi.
Konu sem "valdi" þessa leið sjálf.
Konu sem mér þykir óskaplega vænt um og vildi óska að ég hefði menntun, gáfur og getu til að hjálpa.

Ég er sem sagt kölluð út til að sinna þessari vinkonu minni svo að annað starfsfólk geti sinnt öðrum einstaklingum og þeirra þörfum.
Þegar ég mæti fyrsta kvöldið situr Frú Fjóla í hjólastólnum sínum út á miðjum gangi og er hreinlega vitstola. Hræðslan streymir úr augunu á henni og það fer ekki framm hjá neinum (nema kannski kvöldvaktinni) að Frú Fjóla er hreinlega að missa vitið úr hræðlu. Enda ekki skrýtið.
Svæðið er í kringum heimilið sem hún býr á er umkringt af ný nasistum. Skotið er á húsið og börn eru deyjandi. Frú Fjóla hefur greinilega orðið vitni af hinum hræðilegustu hlutum rétt áður en ég kom og er gáttuð á að ég hafi ekki verið plöffuð niður í andyrinu. 
Við flýtum okkur inn á herbergi þar sem okkur er fært kaffi og með því (í alvörunni s.s) og yfir kaffinu fer þessi lífsreynda kona að segja mér frá atburðarrás kvöldsins. Ansi ruglingslega en mér datt ekki í hug annað en að "trúa" henni og reyna að hughreysta hana. Ég gekk meiri að segja svo langt -að hennar mati- að reyna að ljúga að henni að þetta væri yfirstaðið og að hún væri örugg núna.
Meðan við drukkum kaffið svifu flugvélar yfir heimilið og stundum var kastað út sprengjum.
Hún heyrði og sá útum gluggan deyjandi fólk og hermenn með byssur sem voru að leita að henni.
Ég sóð upp og dróg gardínurnar fyrir gluggan.
Ég sótti spil og reyndi eftir bestu getu að dreifa huganum hjá henni með Ólsen Ólsen, en það er ekki þægilegt að reyna að spila þegar allar þessar hörmungar dynja á rétt fyrir utan gluggan hjá manni. Þá fer maður líka að svindla, útskýrði hún. Og gerði það svo!
Skyndilega mundi hún svo eftir því að henni vantaði brúðarkjólinn sinn!
Þegar ég spurði Frú Fjólu hvað í ósköpunum hún ætlaði að gera við brúðarkjól akkúrat þetta kvöld, leit hún á mig eins og vantaði eitthvað stórkostlega mikið í mig. " Hvað helduru?? ég er að fara að gifta mig" Ég hefði líka alveg getað sagt mér það sjálf. Hvað annað ætti hún að vilja með brúðarkjól.
Ég náði samt að tala hana inn á að það væri nú sennilega einhver ruglingur með dagsettninguna og lofði að fara í að kanna þetta strax daginn eftir.
Þegar leið á kvöldið róaðist Frú Fjóla það mikið að hún gat sagt mér helling um sjálfa sig og fjölskyldu sína frá því að hún var ung.
Ég tók mér blað og penna og stakk upp á að við mundum búa til einhverskonar fjölskyldutré fyrir hana. Það leist henni stórvel á og við reyndum okkar besta. Hvort nöfn og annað er rétt er ekki gott að segja en ég held samt að hún sé nokkuð klár þegar er talað um löngu liðinn tíma.
Eftir að hafa komið henni í rúmið fór ég heim.
Eftir þessa 4 eða 5 tíma, var ég eins þreytt og þegar ég hef tekið tvöfalda vakt og verið að vinna frá 7-23. Búin í skrokknum og höfuðið að springa og með ógleðina upp í kok.

Ég get alveg lofað ykkur því að heimur -geðveikinar- er ekki spennandi.
Mikið svakalega hlýtur að vera hræðilegt að sjá og heyra eitthvað og finna svo að manni sé ekki trúað. Þó ég hafi reynt mitt besta þessi tvö kvöld, gekk ég ekki svo langt að kasta mér í gólfið þegar hún æpti "NIÐUR" og kúrði sig sjálf niður í hjólastólinn. Það eitt olli henni pínu hugarangri. Afhverju var ég ekki eins hrædd og hún???
Þegar ég svo kvöldið eftir reyndi að útskýra fyrir henni að ég sæi ekki það sama og hún, spurði hún mig hvort ég héldi að hún væri geðveik. Ég sagði henni að ég héldi það hreint ekki, en ég vissi að hún væri búin að eiga erfitt + að hún var með blöðrubólgu og það eitt og sér gæti haft ótrúleg áhrif á allar hugsanir og lýðan. Hún lét sem hún trúði mér. Ég vona að hún hafi trúað mér. 
Ég held ekki að Frú Fjóla sé geðveik, þó hún lifi í geðveiki. Og ég vona að hún eigi eftir að fá rétta hjálp og komast aðeins lengra í lífinu.

Góða nótt. Hulla andvaka.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulla Dan

Við náttúrulega búum í raunveruleikanum, sem er geðveiki útaf fyrir sig.  En við sem teljum okkur eðlileg (á köflum a.m.k) erum allavega saman í þessari geðsúpu.

Hinir geðveiku lifa oft hver í sinni veröld. Þetta væri allt mun þægilegra fyrir alla aðila ef væri bara hægt að demba saman nokkrum veikum og þeir mundu fúnkera saman í gegnum lífið. En það er bara ekki þannig.

Svo er ég náttúrulega PERLA! Það er bara ekki spurning  Ásamt öllum öðrum sem vinna með fólk sem á einhverra hluta vegna erfitt á geðinu. Gamalt fólk kemur þar sterkt inn. Enda ekki auðvelt að verða gamall á okkar nútíma.

Og fokk... nú snjóar grrrrrr

Hulla Dan, 4.3.2008 kl. 14:35

2 Smámynd: Guðrún Þorleifs

Hæ hæ, nýji bloggvinur
Gaman að lesa bloggið þitt. Frábær lýsing hjá þér hér að ofan. Sorgleg en ljúft hvernig þú þú tókst þátt.

Eftir að hafa gluggað í bloggið þitt í dag er ég búin að átta mig á að þú býrð hér ekki fjarri. Kannski við einhvern sveitaveginn sem ég hjóla á sumrin Veit sko ekki alltaf hvar ég er að hjóla en alltaf kemst ég heim

Kær kveðja

ps. setti smá komment til þín hjá mér

Guðrún Þorleifs, 4.3.2008 kl. 20:24

3 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

Hæ Hulla..svakaleg lesning þetta og fær mann til að þakka fyrir sinn raunveruleika í dag...því vissulega er þetta allt raunverulegt fyrir konunni..úff...gaman að sjá þig hér....man vel eftir þér!

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 4.3.2008 kl. 22:51

4 Smámynd: Unnur R. H.

ÞAð er bara sorglegt að vita til að einstaklingar eins og frú fjóla fái ekki þá hjálp sem hún virkilega þarf..En mér finnst þú rosalega dugleg og koma frábærlega sterk gagnvart fjólu..Kannski ég verði svona dugleg þegar ég er flutt til danmark

Unnur R. H., 5.3.2008 kl. 12:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband