LOKSINS!!

Þá er bara alveg að koma að því.
Eftir 4 tíma verð ég á tónleikum með Meatloaf!!!!
Ég og http://stinasveins.blog.is/blog/stinasveins/ ákváðum fyrr í þessari viku að slá þessu upp í kæruleysi og bara skella okkur tvær einar.
Þar sem við höfum bara einu sinni farið eitthvað tvær einar síðan við kynntumst fyrir 6 árum, og það var fyrir 2 eða 3 árum þegar við skelltum okkur tvær einar upp í Kolding og fengum okkur naflalokka og siðan pitsu, tók ca 3 tíma, þá vorum við búnar að ákveða að hittast kannski pínu fyrr og fá okkur bjór og pitsu og spjalla smá áður en bollan stígur á sviðið. Hefði verið voða gaman.
En þar sem það gekk ekki upp, þá gengur bara betur næst Smile

Góða skemmtum á mig í kvöld!

Eigið notarlega helgi öll! Heart
 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tiger

 Woo .. en æði. Mítlov er hot - væri alveg til í að fara með þér á tónleikana! Mar á nú góðar minningar um þennan kappa í den ...

Vonandi verða tónleikarnir flottir - og vonandi skemmtir þú þér æðislega vel! Knús og kram til þín skottið mitt...

Tiger, 15.8.2008 kl. 13:23

2 Smámynd: Heiður Þórunn Sverrisdóttir

OH frábært ég hlustaði einu sinni svo mikið á hann góða skemmtun Hullan mín og góða helgi.

Heiður Þórunn Sverrisdóttir, 15.8.2008 kl. 13:28

3 Smámynd: Hulla Dan

Takk fyrir það

Vona líka að þetta verði gama og geri mitt besta til að skemmta mér.

Hulla Dan, 15.8.2008 kl. 13:29

4 Smámynd: Guðríður Pétursdóttir

hann er svalur..ekki alveg svalastur,en fylgir fast á eftir Steven Seagal og Bruce Campell

Guðríður Pétursdóttir, 15.8.2008 kl. 14:29

5 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Góða skemmtun Hugljúf.  Það væri nú ekki leiðinlegt að berja bolluna  augum.

En hey ertu með naflalokk???  Var það ekki vont?

Elísabet Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 15:09

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

ÉG hef haft gaman af honum síðustu 30 árin, mörg laganna hans eru ódauðleg.  Innilega góða skemmtun með vinkonu þinni  In Love

Ásdís Sigurðardóttir, 15.8.2008 kl. 18:20

7 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Vonandi skemmtir þú þér vel á tónleikunum

Kristín Gunnarsdóttir, 15.8.2008 kl. 18:22

8 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Skemmtu thér rosalega vel. og góda helgi til  thín.

kær kvedja frá frederikssund.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 15.8.2008 kl. 21:12

9 Smámynd: Gísli Torfi

Nei Nei er Kjella bara að fara að skunda á Kjötleif... Paradise by the Dashboard of light  YEAH

Vona að hann hafi verið Rocking Gooooooooooooooood

Gísli Torfi, 16.8.2008 kl. 05:54

10 Smámynd: Hulla Dan

Beta: Já ég er með lokk og jú það var viðurstyggilega vont. En ég er gella

Þið hin Takk

Hulla Dan, 16.8.2008 kl. 16:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband