Færsluflokkur: Bloggar
23.5.2008 | 06:44
Hjálpum þessari fjölskyldu
Mér var bent á þetta og birti þetta hérna ;
Leggjumst öll á eitt og hjálpum þessari fjölskyldu |
fimmtudagur, 22 maí 2008 | |
Sett hefur verið af stað söfnun vegna mikilla veikinda sem komið hafa upp hjá, Öldu Berglindi Þorvarðardóttur. Alda sem er borin og barnfæddur hornfirðingur, hefur nú greinst með illkynja sjúkdóm og framundan er strangur og erfiður tími hjá henni og fjölskyldu hennar. Ljóst er að eiginmaður hennar Lárus Óskarsson verður frá vinnu á þessum erfiðu tímum. Lárus og Alda eiga þrjár litlar stelpur á aldrinum 2ja til 7ára. sem þurfa á hans umönnun að halda, og einnig okkar stuðnings í þessari baráttu.Stofnaður hefur verið söfnununarreikningur handa þessari fjölskyldu í Sparisjóð Hornafjarðar. Látum okkur málið varða og sýnum samhug í verki og leggjum þeim lið!! Margt smátt gerir eitt stórt. Reikningsnúmerið er: 1147-05-401196 Kt: 260574-3379. Velunnarar. |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2008 | 20:27
Júróvísjon Símon!!!
Mikið er hann nú myndarlegur drengur hann Símon sem tekur þátt í júró... fyrir hönd Dana, mundi ég segja ef ég væri gömul kona.
En þar sem ég er ekki gömul og varla kona, meira svona stelpuskjáta, get ég óhrædd sagt
"Hann er ekkert smá svívirðilega, getnaðarlega, guðdómlega, kynþokkafullur þessi foli. Og ég anda að mér sama danska loftinu og hann.
Megi hann vinna, svo ég geti séð hann aftur, og aftur og svo aftur.
Annars voru Regína og Friðrik voða krúttleg líka. Skórnir hennar gínu bara æðislegir, og ég var alveg að fíla þetta bleika saman með þessum svarta lit.
Minnti dálítið á sundbol sem pabbi gaf mér áður en ég fór í R-nesið 1984. Hann var reynda bleikur og svartur en ég hef alltaf verið voða hrifin af þessum tveimur litum saman.
Spurning að ég kaupi einhverja fallega flík á hann Eika minn í þessum litum í tilefni þess að hann er búinn að forðast mig eins og heitan eldinn síðan ég veiktist. Hann er svo hræddur um að smitast.
Það er sem sagt ekki í boði fyrir mig að verða langtíma og/eða legu sjúklingur í þessu lífi. Hjúkk fyrir það.
Nú ætla ég að kíkja á úrslitin og von að Ísland og Danm0rk komist áfram.
P.s Maja þú verður að kenna mér nokkur orð á dönsku sé ég...
---------------------------------------------------
Ihhh hvad han er nu køn dreng han Simon som synger i eurovision for Denmark, kunne jeg sige hvis jeg var en gamle kone.
men der som jeg ikke er gammel og næsten ikke kone, mere sådan pige tosse, kan jeg sige, uden at blive bange, "han er sku utrolig sexy, guddomlig køn (og mange flere ord som jeg ikke kender på dansk) den sexapil og hanhest. (ved man ikke siger hanhest, men jeg skynder mig lidt nu) Og jeg trækker ind same luftet som ham.
Jeg håber ham vinder så jeg kan se ham igen og igen, og igen en gang til.
De var også meget fin Regina og Fridrik fra Island. De sko som hun havde på var bare rigtig rigtig flotte., og jeg kan også meget godt lige den lyserød farve sammen med den sorte.
Minder lidt om en baddragt som min far købte til mig 1984 når jeg skulle på efterskole. Den var godt nok lyserød og sort, men jeg har altid kunne lige de to farve sammen.
Spørgsmål at jeg købe noget flot tøj til Eika i disse farve i på grund af at han næsten ikke har komet i nærheden af mig siden jeg bliv syg, han er bang om at jeg smitter ham.
Det er altså ikke et tilbud for mig at blive langtid og/eller langliggende syg i den her live. Det er jeg også glad for.
Nu vil jeg se om Danmark og Island kommer vider.
Har det godt og monja
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.5.2008 | 03:50
Allt að koma :)
Þó að ég sé ekki búin að sofa dúr í nótt og sé aum í öllu bodýinu eftir alltof langar legur í gær, þá finn ég að ég er eitthvað að hressast. Þó ég sé en með smá hita, dey ég sennilega ekki úr þessari flensu.
Gærdagurinn fór sem sagt fram hérna upp í sófa og honum eyddi ég í að horfa á Friends og vorkenna mér.
Mér til skemmtunar var einn lítill bröndóttur kettlingur sem hefur hlotið nafnið Guttormur kelirófa.
Hann er 5 vikna og er með stærri karakter en mikið af mannfólkinu á þessari jörðu. Blíður og góður. Veit upp á hár hvenær hann á að kúra, kela, þvo og leika. Veit að hann má ekki bíta of fast. Veit að mér finnst gott að hafa sofandi ketti á bringunni á mér. Þeir hlýja svo vel. Dásemdar köttur út í eitt.
Þegar ég skreið upp í rúm til að reyna að sofa smá, setti ég kisa í kassann til systkina sinna. Þegar ég kkom svo fram klukkutíma seinna án þess að hafa náð að sofna, lá þessi krúttkisi í sænginni sem ég hafði skilið eftir inn í sófa og steinsvaf.
Kisa og Misa eru gjörsamlega að gefast upp á kettlingaskaranum. Þeir eru farnir að ganga svo á þær að þær eru hreinlega að veslast upp og báðar orðnar grindhoraðar. Verð að kaupa kettlinga fóður svo að þeir fari að láta mömmur sínar í friði.
Góðan dag á ykkur öll og takk fyrir kommentin.
---------------------------------------------------------------------------------
Selvom jeg ikke har sovet en lille lur i nat og er øm i hele kroppen efter at have ligged for meget i går, kan jeg mærke at jeg er ved at få det lidt beder. Og selvom jeg har lidt feber endnu, tro jeg ikke jeg dør af den her influenza
I går lå jeg kun i min sofa og slog tiden ihjel med at kigge på Venner i fjernsyn og have ondt af mig selv.
Jeg havde selskab af en lille stribede killing som har fået navnet Guttorm Knusimus. Han er kun 5 uge gammel og har større karakter men mange af mennesker på den her jord har. Sød og dejlig. Han ved præsis hvornår han skal knuse, kysse, vaske og leje. Han ved også at han ikke må bide for fast. Og han ved at jeg syns det er godt når han sover på mit bryst. Det varmer så godt. Dejligsød kat.
Når jeg kravlede op i seng i nat til at se om jeg kunne sove lidt, puttede jeg katten i kassen til sin søstre og brødre. Når jeg kom ind i stuen igen en time senere, uden at have sovet, lå disse søde kat på mine dyne som lå i sofaen og stensov.
Kisa og Misa er total ved at være færdig med alle killingene. Killingerne tager alt for meget fra dem og de er begge to blevet alt for slank og ser slet ikke så godt ud. Jeg er nød til a købe killings mad så mødrene kan tage lidt på igen.
God dag til jer alle sammen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
20.5.2008 | 08:32
Get ekki verið svona lengur... góð ráð óskast.
Ég er aumingi með hor.
Ég er í svo mikilli sjálfsvorkunn akkúrat núna og ég er viss um að mér batni aldrei nokkur tímann.
Samt er ég ekki einu sinni ekta veik. Ekki með hita eða neitt.
Ég hafði það aðeins betra í gærkvöldi eftir að hafa hámað í mig 2 panodil.
Núna er ég bara með endalaust af beinverkjum og meiri að segja með beinverki í tönnunum og upp í gómnum. Það er ekki notarlegt.
Svo er ég með niðurgang úr nefinu mínu. Lít út eins og Rúdólf og er komin með svo aumt nef að það er sárt að anda með því. Veit ekki því í ósköpunum ég er með eitthvað svona núna.
Pirruð og eiginlega bara öskuill.
Hugsið ykkur ef ég yrði nú raunverulega veik. Fengi einhvern hræðilegan sjúkdóm eða eitthvað. Vá hvað ég ætti að skammast mín..... Á samt bágt.
Búin að gera tvær tilraunir til að fara út í garð og gera eitthvað. Reyta arfa til dæmis. Nóg af honum út um allan 4000 fermetra garðinn minn.
Fyrri tilraunin endaði með því að ég ákvað að bíða þar til sólin væri farin að skína aðeins meira því ég þjáist af óútskýranlegum kulda.
Seinni tilraunin endaði þannig að ég leit yfir ógróðurinn og fannst hann allt í einu bara ljómandi fallegur. Hann blómstrar meiri að segja. Þannig að í einhverjum óljósum tryllingi, reif ég af mér vinnuhanskana, lofaði arfa drottins og sá fyrir mér að hljóta bestu verðlaunin fyrir frjálslegasta garð Danmerkur. Arfinn er meiri að segja aðeins í beðunum þannig að garðurinn er snyrtilegur þrátt fyrir allt.
Mikið er nú annars gott að ausa úr sér aumingjaskapnum.
Mojn og góðan bata til mín.
-----------------------------------------------------------------------------------------------
Jeg er en kæmpe stakels med masse af næsepus.
Jeg har så ondt af mig selv lige nu og jeg er næste sikker på at jeg aldrig får det bedre.
Dog er jeg ikke rigtig syg. Jeg har ikke feber eller noget.
Jeg fik det lidt bedre i går aftens efter at have spist 2 pamol.
Nu har jeg bare rigtigt meget af knoglesmerter og jeg har også smerter i mine tænder og op i gummen. Det er ikke særlig rart.
Så har jeg diarré i mine næse, og jeg ser ud som Rudolf. Min næse er så øm at det gør ondt kun at træk vejret i gennem det. Forstår ikke hvorfor jeg har sådan noget lige nu.
Irriteret og meget sur.
Prøv at tænk hvis jeg bliv virklig syg. Hvis jeg fik en skræklig sygdom eller noget. Jeg skulle skam mig selv... Alligevel har jeg det skidt.
To gang i morgens har jeg prøvet at gå ud i min have til at gøre noget gavn. For eksempel at tage ukrudt væk. Det er nok af ukrudt i min 4000 kvm have.
Først når jeg gik ud, gik jeg ind igen og besluttede mig til at vente indtil solen var begyndt at skinne lidt mere, fordi jeg lyder af uforklarlige kold.
Næste gang jeg gik ud og kiggede over min ukrudt, syns jeg pludselig den så bare rigtig godt ud. Den blomster og det hele. Jeg skynde mig at rive mine arbejdes hanske af og tækkede taknemlig til gud for den dejlige ukrudt, jeg tænker nok jeg får den 1. præmier for den flotteste og vildeste have i hele Danmark.
Ukrudtet er også kun i blomsterbedene så haven er pæn lige meget hvad.
Det er ellers meget godt at kunne øse fra sig dovnskabet
Mojn og god bedering til mig
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.5.2008 | 17:50
Dýrin
Fékk skyndilega löngun til að smella inn nokkrun myndum af dýrunum mínum.
Fik pludeslig idea om at smide ind nogle billeder af mine dyr. Og at begynde at blog på dansk igen.
Hanibal prøver at sende sine hustrur i seng.
Og Hanibal syns han er den floteste og den alle smukkeste.
Søstrener Misa og Kisa er flutted samen med sine killinge.
De søde killinger. Vi har 4 tilage som mangler et hjem....
Þá er löngum minni fullnægt. Góða nótt og sofið rótt.
Så har jeg gjørt det. God nat og sov godt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
19.5.2008 | 10:32
Lilli eymingi
Rolaðist hér um á laugardaginn og hafði það bara ekki svo sérlega gott. Var kalt og með hausverk og túrverk og nennti ekki að þrífa. Og bara allt ómögulegt. Þá hringdi Maja og bauð okkur yfir til sín um kvöldið í öl og kjaftagang. Ég var alveg viss um að mér mundi skána ef við munum drífa okkur.
Dana og Hanne komu hingað til að sitja hjá strákunum og eftir panodil og kvöldmat, skutlaði Dana okkur til þeirra.
Og mér skánaði virkilega. Eftir nokkra bjóra, söng og læti, leið mér bara þokkalega.
Dana sótti okkur svo fljótlega eftir miðnætti og þegar heim kom leið mér skyndilega bara ekkert þokkalega meira.
Gærdagurinn fór svo í að reyna að fá það betra. Það var gert með ýmsu móti. T.d með því að reyna að sofa lengi. Svo að taka hausverkjartöflu. Svo að fara í bíltúr með skvísurnar heim til sín. En allt kom fyrir ekki. Um tvöleitið fengum við svo gesti. Það var íslenskt par sem er búið að velja sér eina kisu hjá okkur. Þau komu við til að líta á gullklumpinn sinn og sátu hérna og fengu sér kaffi sopa í blíðunni.
Það er annars pínu merkilegt hvað maður er öðruvísi þegar koma íslendingar í heimsókn. Maður getur talað um allt milli himins og jarðar og finnst maður þekkja fólk pínulítið þó að maður sé að sjá það í fyrsta eða annað sinn.
Allavega fær kisan okkar ábyggilega voða gott heimili hjá þessum íslendingum úr Garðinum.
Þegar þau voru farin ákvað ég að hætta nú þessum aumingjaskap og drattast í vinnuföt og fara að gera eitthvað af viti. Eiki var búinn að eyða deginum í matjurtargarðinum og ég fór í að búa til beð fyrir baunirnar okkar og gróf upp risastóra trjárót. Fann í þessum uppgreftri mínum margar salamöndrur og þar sem þær sjást ansi illa ofna í moldinni, hjó ég hala og afturfót af einni, og haus af annarri. Tvær sluppu svo til ómeiddar og ég var á tímabili að hugsa um að hætta bara við þennan trjárótarhnullung svo ég mundi nú ekki limlesta fleiri salamöndrur.
En nú er rótarhaugurinn farinn og búið að slétta úr moldinni og beðið tilbúið fyrir baunirnar.
Matjurtargarðurinn er orðinn stútfullur af kartöflum, gulrótum, rófum og káli og ýmsu öðru. Verður spennandi að fylgjast með hvort að komi eitthvað upp af þessu. Mikið af fræjunum nefnilega útrunnið, en það er aldrei að vita.
Ég er hinsvegar lítið skárri og er farin að hnerra og hósta óhugarlega mikið í þokkabót.
Á eiginlega bara hrikalega bágt.
Over and out. Hilen, Hulla pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
15.5.2008 | 07:08
Og þá kom að því.
Þá er ég búin á síðustu næturvaktinni, alla vega í bili og þar sem sólin er alveg að fara að breiða úr sér í garðinum mínum er ég ekki að nenna í rúmið alveg strax.
Hér er ýmislegt búið að gerast frá því ég ætlaði að blogga síðast og ég er að hugsa um að blogga sýnishorn núna.
Fermingin hjá Atla Hauk tókst með eindæmum vel. Þó ég færi ekki að undirbúa hana fyrr en daginn áður. Þóra kom og var guðómalega hjálpsöm.
Á laugardeginum, meðan Eiki fór að ná í vökva veitingar til Þýskalands og Tengdamamma og Linda fóru að versla fórum við Þóra heldur betur í gang.
Við náðum að útbúa allt meðlæti og vorum næstum búnar með allan bakstur áður en fólkið kom heim.
Hérna voru 8 næturgestir sem allir þvældust hver fyrir öðrum, allir að reyna að myndast við að hjálpa til . Ég setti Mónu og Lenu í að þvo skeljar og þegar Linda kom heimum rétt fyrir miðnætti (var í matarboði) dobblaði ég hana til að setja marsípan á fermingartertuna sem ég hafði ætlað að panta en gleymt því.
Tengdamamma fékk það verkefni að búa til salatið í brauðtertuna ásamt Þóru og svo fékk hún þann heiður að stytta fermingarfötin svo Atli liti vel út. Já hún er sko betri en engin hún tengdamamma mín .
Athöfnin í kirkjunni tók aðeins einn og hálfan tíma, þrátt fyrir að fermingarbörnin væru bara 12 og engin gekk til altaris. Heldur ekki fermingarbörnin.
Séra Kingó byrjaði athöfnina á að bjóða öllum þeim sem voru með vælandi smábörn að taka sér göngutúr í góða veðrinu til að ekki yrði truflun í kirkjunni g það fannst mér ansi gott. Fólk er yfirleitt svakalega hneykslað á honum, en ég er honum innilega sammála.
Hann hafði líka látið fermingarbörnin fá setningar úr trúarjátningunni sem þau áttu svo að mála á
striga.
Það tók óratíma að kynna þessi verk, en engu að síður finnst mér þetta gott framtak hjá honum.
Krakkarnir þurftu að pæla í hverri setningu mjög djúpt til að koma henni frá sér á striga og ég er vissum að hann Atli Haukur skilji trúarjátninguna miklu betur en ég.
Að loknum myndartökum og þessháttar komumst við loksins heim og þá tók eldamennskan við.
Matseðill Fjöruborðsins var í boði með öllu tilheyrandi.
Atli Haukur stóð sig eins og hetja og bauð alla velkomna og eftir súpuna stóð hann upp til að segja fólki að smá bið væri í matinn og öllum væri því frjálst að hreyfa sig um í góða veðrinu, eitthvað mismælti hann sig og niðurstaðan var sú að hann bað fólk vinsamlegast að fara... Það var leiðrétt eftir mikinn hlátur.
Humarsúpa með heimabökuðu brauði var í forrétt og humar með öllu tilheyrandi í aðalrétt.
Að öllu áti loknu tók Atli Haukur upp alla pakkana og las á öll kortin því svoðeilis gerir maður í útlöndum.
Svo var hámað í sig kökur. Linda og Móna voru með söng til hans, sem allir sungu og á meðan gekk hann um og fólk klístraði á hann límmiðum. Voða gaman.
Fyrir rest var Eiki kominn með gítarinn og Atli Haukur búinn að lauma sér úr fermingarfötunum og kominn í gallabuxur og stuttermabol sem á stendur "fock me, I´m famous." Ekki beint guðdómlegt.
Stráksi fékk fullt af gjöfum og ca 8000 dk, sem er eiginlega ótrúlegt, því að ekki fékk hann svo mikið sem kort frá föðurfólkinu sínu og mín megin fékk hann peningagjafir frá mömmu minni og pabba mínum og Rögnu. Rest kom frá fólkinu hans Eika. Segi það en og aftur, hann fékk frábæra "fóstur"fjölskyldu fyrir 12 árum.
Mest undrandi var hann á peningagjöf sem hann fékk frá ömmu Láru. Hann sagði mér að þetta væri langstærsta gjöfin því amma kom líka og hann gerir sér vel grein fyrir að það kostar sitt.
Ég er farin að röfla og nenni ekki meiru.
Sem sagt, í alla staði frábær dagur og ég er hrikalega fegin að sé 2 ár í næstu fermingu.
---------------------------------------------------------------------------
Eiki fór í studitur= bjórdrykkjuferð, til Tékklands á fimmtudaginn síðasta og kom aftur heim á mánudaginn.
Hann mátti sitja í rútu í 14 tíma hvora leið bara til að skoða sóðalegustu bjórverksmiðjur heims. Er búin að sjá myndir og þetta er ekkert grín.
Á meðan stækkaði ég veröndina okkar um tæpa 20 fermetra, eiginmanni mínum til ómældrar gleði.
Ég ætti að vera búin að ná því núna að hann er ósköp lítið fyrir að láta koma sér á óvart.
Larsinn minn kom og hjálpaði mér að grafa upp fyrir veröndinni og Þóra kom svo á föstudeginum og hjálpaði mér að fylla grunninn af sandi. Það fer gríðarlegt magn af sandi í svona lagað.
Ég fékk gefins hellur fyrir 2 árum síðan og svo áttum við sexkanta hellur sem hann Addi minn tók upp fyrir mig síðasta sumar. Alls voru þetta ca 20 fermetrar og var ég búin að teikna upp dýrindis verönd.
Það var Lars sem áttaði sig á að sexköntuðu hellurnar voru í tveimur stærðum og við tók púsluspil dauðans. En þetta hafðist allt og ég er skýjum ofar af gleði. Eiki er ekki en búinn að átta sig á þessari guðsgjöf, en þegar Stína og Bjarni koma hingað næst er ég viss um að hann tekur gleði sína á ný...
Nú er sólin kominn á þessa fallegu verönd svo ég er að hugsa um að skutla mér út í hálftíma áður en ég drattast inn í rúm.
Yfir og út. Hulla Pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
13.5.2008 | 19:48
Ekkert blogg...
Vegna ótrúlegra anna hef ég ekkert haft tíma til að blogga, en birti hérna mynd af afmælismola gærdagsins.
Elsku pabbi minn, til hamingju með daginn í gær
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
8.5.2008 | 07:48
Haugur dauðans!
Nennið í mér er ekki búið að vera stórt undanfarið. Bloggfærslan um ferminguna verður að bíða... alavega þar til á morgunn.
Langar bara að óska bestu vinkonu minni (þessari sem aldrei bregst) til hamingju með daginn.
Litla dúllan fyrir alltof mörgum árum.
Með stóru systur sinni sem var ekki sátt við að krúttmolinn fengi ekki nafnið "Kata kanína.
Hérna var henni gefið nafn, og hefur hún verið hvers manns hugljúfi síðan þá.
Með mömmu sinni og stóru systur á fyrstu jólunum. Feitt og pattaraleg
Með yngri systkinum sínum í bíltúr með pabbanum í Eyjafirði fyrir, guð má vita, hversu mörgum árum.
Nú er sólin farin að skína. Þessi sem er búin að vera bak við þokumistur í allan morgunn til að gefa mér tækifæri á að ryksuga, sem ég annars nenni ekki þegar er sól og blíða. En ég klúðraði því.
Takk fyrir allar kveðjurnar og knús á ykkur öll. Hulla pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
5.5.2008 | 19:17
Myndir núna, blogg seinna :D T.d á morgunn.
Atli Haukur rétt fyrir athöfn.
Amma Lára með Snáðann ný fermdann.
Þetta er aðeins búið að taka 3 korter, svo nú nenni ég ekki meira.
Þúsund þakkir fyrir allar kveðjurnar, og hér eru en 6 kettlingar sem vantar heimili.
Góða nótt. Hulla Þreytta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)