Soffía

Soffía

 Veikindi og erfiðleikar gera sjaldnast boð á undan sér, það fær hún Soffía sem er kona á fertugsaldri að reyna þessa dagana,  hún þarf á hjálp okkar og fyrirbænum að halda

 Soffía greindist með æxli í höfði í byrjun Ágústmánaðar, Soffía og börn hennar þrjú voru í sumarbústað austur á landi. Og þá fór meinið að gera vart við sig með sjónsviðsskerðingu á vinstra auga, svima og ljósfælni. Þrátt fyrir öll þessi einkenni tókst henni til allrar guðs lukku að koma sér og börnunum heim í Hafnarfjörðinn heilu og höldnu. Þegar heim var komið fóru einkennin versnandi og á endanum fór Soffía uppá bráðavakt, þar sem gerðar voru rannsóknir og höfuðmynd tekin. Á þeirri mynd sáu læknarnir eitthvað sem krafðist frekari athugunar.  Daginn eftir var hún send í segulóm myndatöku, og þá kom í ljós að um æxli væri að ræða.  Aðeins viku eftir greiningu gekkst Soffía undir stóra aðgerð sem tók 7 tíma, aðgerðin gekk vel en einungis var hægt að fjarlægja helminginn af æxlinu.  Sýni sem tekin voru sýndu að næsta skref yrði geislameðferð og hefst hún að viku liðinni.  Soffía er enn með skert sjónsvið og ljós og minnsti hávaði fara illa í hana.  Soffía á 3 börn, 21 árs gamla dóttur og 2 syni 6 ára og 9 mánaða. Maður hennar og faðir barna hennar lést fyrir ári síðan í bílslysi og hét hann Jóhannes Örn.

Soffía dvelst enn á sjúkrahúsi og óvíst hvenær hún fær að fara heim, hún verður óvinnufær um óákveðinn tíma, hún hefur starfað sem húsvörður í blokk og búið í húsvarðaríbúðinni. Það er því ljóst að hún mun verða húsnæðislaus og atvinnulaus með börnin sín þrjú.

Stofnaður hefur verið reikningur til styrktar fjölskyldunni og er hann sem hér segir Reikningsnúmer: 0140-05-14321 kennitala: 161069-3619


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: María Guðmundsdóttir

jésús minn hvad thetta er sorglegt. Vonandi geta sem flestir lagt henni lid. Fallegt framtak hjá thér Hulla ad setja thetta hér inn

María Guðmundsdóttir, 7.9.2008 kl. 06:43

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Ía Jóhannsdóttir, 7.9.2008 kl. 10:18

3 Smámynd: Helga Nanna Guðmundsdóttir

svakalegt að heyra þetta...maður bara verður að leggja sitt af mörkum...fallegt af þér að setja þetta hér inn Hulla

Helga Nanna Guðmundsdóttir, 7.9.2008 kl. 14:28

4 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Þetta er komið víða á Bloggland og gleðst ég yfir því. Munið...margt smátt gerir eitt stórt!

Rúna Guðfinnsdóttir, 7.9.2008 kl. 17:14

5 Smámynd: Elísabet  Sigurðardóttir

Elísabet Sigurðardóttir, 8.9.2008 kl. 09:27

6 identicon

Sæl.

Ég er með í huganum og geri  mitt besta.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 11.9.2008 kl. 04:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband