10.9.2008 | 06:44
Þá er komið að því
Og ég get ekki sagt að ég sé beint róleg.
Er komið að því að mennirnir eyðileggi heiminn eða tekst þetta hjá þeim, þá hljóta þeir að verða voða voða glaðir.
Annars fór ég inn á http://www.deathclock.com/ í nótt og komst þá að því að ég ætti ekki að deyja fyrr en 2049 þannig að ég get dregið andan léttar
I kvöld fáum við að sjá hvort mark sé takandi á dauðaklukkunni... nú eða 2049.
Finnst það frekar mikill bömmer ef við deyjum öll. Fullt sem ég á eftir að gera.
En þetta mun nú allt skýrast í kvöld. Vona allavega að þetta sé ekki í síðasta sinn sem ég blogga.
Ætla núna að fara að sofa eftir næturvaktina svo ég geti vakað í kvöld
Látið ykkur nú líða vel... Knús á ykkur öll og ég vona að við lifum svo ég geti bloggað um kynþokkafull karlmenn
Merkisdagur í vísindunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hulla, Hulla!!! Hættu þessu Sem betur fer vaknaði ég lifandi
Guðrún Þorleifs, 10.9.2008 kl. 07:07
Segjum tvær, en var alltaf að vakna öðru hvoru í nótt, hafði svona andvara á mér ef ég gæfi nú upp öndina og allt sem ég á eftir að gera næstu daga hér.
Góðan daginn þegar þú kemst á ról á þessum fallega september morgni.
Ía Jóhannsdóttir, 10.9.2008 kl. 07:47
ok ég las þetta en sá hvergi talað um heimsendi
Helga Nanna Guðmundsdóttir, 10.9.2008 kl. 10:24
Úff Hugljúf, þú hræðir úr manni líftóruna.
Knús og hafðu það gott í kvöld.
Elísabet Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 10:54
Er alveg bráðlifandi. Eða það held ég allavega.
Helga Magnúsdóttir, 10.9.2008 kl. 11:35
Ég hugsaði ekki um þetta einu sinni. Algjörlega kúl. En ég er töffari.
Jenný Anna Baldursdóttir, 10.9.2008 kl. 13:19
ég held að ég sé ennþá lifandi
nema að mig sé að dreyma
Guðríður Pétursdóttir, 10.9.2008 kl. 17:17
Þetta var langur og leiðinlegur dagur, þannig að mér hefði líklega verið nákvæmlega sama þó ég sogaðist inn í eitthvert svarthol.....
Rúna Guðfinnsdóttir, 10.9.2008 kl. 17:20
Ekki var mér hugsað til þess, en hægan ég var andvaka í nótt vissi ekki afhverju,
kannski einhver udirvitund.
Guðrún Emilía Guðnadóttir, 10.9.2008 kl. 17:23
það hefur frá örófi alda verið spáð heimsendi, en trúðu mér það verður bara kreppa á hinum og þessum stöðum í heiminum og það byrjar fyrst alvarlega 20012, en ekkert sem við ráðum ekki við.
kærleikur til þín mín kæra
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 10.9.2008 kl. 20:06
HEI HULLA !!!! Við erum á lífi
Njótum þess
Bestu kveðjur í danaveldi.
Linda litla, 11.9.2008 kl. 11:11
Mér finnst thetta ferlega scary og skil ekkert í thessu fólki. Hefur thad aldrei heyrt ad thad er hættulegt ad leika sér med eldinn.
Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 11.9.2008 kl. 21:04
Ég hugsaði nú ekkert um þetta, maður fer héðan þegar að því kemur hvort sem það er heimsendir eða ekki
Kristín Gunnarsdóttir, 12.9.2008 kl. 09:07
og svo voru einhverjir ad hakka sig inn á kerfid. uuuuuuhhhhhhhh scary
Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 12.9.2008 kl. 21:19
þegar ég fer 6 feet under........ þá kemst maður á botnin í lífinu.
Gísli Torfi, 13.9.2008 kl. 02:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.