Arg!!!

Í dag er ég brjáluð Devil 
Mest er ég brjáluð út í danska verkalýðsfélagið og þá sem sömdu þær úldnu reglur sem þar gilda.
Mig grunnar sterklega að það séu konur sem hafa sett þessi bjánalegu reglugerðir því konur eru jú konum verstar og ég er ekki viss um að neinum karlmanni mundi detta svona vitleysa í hug.
Þannig er að ég er að fastráðin upp á 28 tíma í viku. Ég er ljómandi sátt við það og get alltaf tekið aukavinnu ef út í það er farið.
Þegar ég byrjaði var mér kynnt hvernig ég mundi vinna 4 vikur fram í tímann og það passaði afskaplega vel inn í mína rútínu.
Aðra vikuna var ég að vinna miðviku og fimmtudaga og hina vikunna frí á miðviku og fimmtudögum.
Dagarnir sem maður á má milli heita allir einhverjum voða fínum nöfnum t.d AD dagur og A1 dagur og PF dagur o.s.frv. Þegar ég spurði út í þetta var mér bara sagt að þetta væru frídagarnir mínir og þetta þyrfti að vera svona í kerfinu. Enda ekki fyrir hvíta konu að finna út úr þessu. Bla bla.
Ef ég svo tók aukavakt þá fékk ég hana ekki útborgaða fyrr en 3 mánuðum seinna. Þetta er ofsalega sniðugt fynnst mörgum því þá liggja allir aukatímarnir inni og fólk getur tekið frí út á þá. Það er samt ekki alltaf sem maður getur ráðið hvenær.Woundering
Það var ekki fyrr en María byrjaði fyrir um ári að hún náði að útskýra þetta fyrir mér. Eða alla vega svo mikið að ég náði að skilja að ef ég tek aukavinnu t.d á AD degi fæ ég ekki krónu aukalega fyrir það, en ef ég kæmi aukalega inn á PF degi fengi ég yfirvinnu borgaða.
Ég bað svo um að allar vaktir sem ég tæki aukalega kæmu til útborgunar strax og ekki seinna.
Ég er nefnilega svo vond manneskja að ég tek bara auka vinnu ef mig lagnar til þess og ef mig vantar auka pening. Ekki til að gera einhverju sveitafélagi greiða. Það vill nefnilega þannig til að ég er með fullt hús að börnum og köttum og manni og öllu þessu þarf líka að sinna.
Svo núna rétt fyrir sumarfríið mitt tók ég eftir að það var búið að breyta planinu mínu án þess að svo mikið sem að ræða það við mig fyrst. Nú er það þannig að ég alltaf að vinna miðviku og fimmtudag aðrahverja viku en hina annaðhvort mánudag, föstudag, laugar og sunnudag, eða þriðjudag, föstudad, laugar og sunnudag. Og ég get það allveg. Finnst bara lágmarks kurteisi að spurja áður en er ráðist á vaktarskemman manns og öllu umbreytt.
Þegar ég svo fór að skammast yfir þessu við trúnaðarkonuna okkar sagði hún mér að lögum samkvæmt mætti yfirmaður minn róta í planinu mínu eins og honum hentaði, bara ef hann gerði það alltaf með 4 vikna fyrirvara!!!
Ég náttúrulega hélt að konan væri að drilla í mér og hló bara Hahahahaha. En nei nei. Hún var sko ekkert að drilla í mér eitt eða neitt. Svona er þetta bara. Og þó að sumir séu kannski ekkert sáttir við þetta þá gerir engin eitt eða neitt.
Það hefur ekki verið gert mikið af þessu á mínum vinnustað en það eru sum elliheimilli hérna sem keyra þetta svona allt árið og allir voða sáttir.
Þegar ég sagði trúnaðarkonunni að ég væri ekki til í eitthvað svona og þetta gæti ekki gengið því að sumir eru með aukavinnu eða bara að maður vill gjarnan getað planlagt sig lengra en 4 vikur framm í tímann varð hún svakalega undrandi og augunn í henni urðu á stærð við botn á bjórflösku og hún hvíslaði að mér að ef að þetta yrði tekið upp hjá okkur gæti ég ekki neitað. Ég gæti átt á hættu að verða rekin. Ég sagði henni að ég mundi nú sennilega bara byrja á því að segja upp ef þær ætluðu sér að taka upp á einhverju svona. En hún er frábær þessi trúnaðarkona, virkilega indæl og ég er guðs lifandi fegin að það sé ekki hún sem setur þessar asnalegu reglur. Þá þyrfti ég nefnilega að hata hana.

Ég er búin að vera afskaplega dugleg við að taka aukavaktir. Bæði í ágúst og svo núna í september.
Svo fékk ég launaseðilinn minn og þar vantar inn á allar aukavaktirnar. En þessi skrifstofudúlla hefur tekið sér það bessaleyfi að setja allar mínar aukavaktir sem ónýta frídaga.
Þegar ég svo hringdi í hana í morgunn og sagði henni að hún yrði að laga þetta og leggja inn á mig það sem upp á vantar varð hún bara vandræðaleg og skildi ekki neitt í neinu. Þannig að ég þurfti að útskýra mjög gaumgæfilega fyrir henni hvað hún hefði gert. Ég ætti sem sagt inni einhverja 25 tíma í frídaga og vildi fá þá útborgaða í dag.
Hún varð hinsvegar mjög hrifin af öllum þessum frídögum og spurði hvort ég væri ekki glöð!!
Ég varð að hryggja hana með að segja að gleði mín væri afskaplega takmörkuð og mér þætti voða vænt um ef hún bara mundi laga þetta núna.
Já, sagði hún. Ég hugsa að ég geti lagað þetta þannig að þetta komi með næstu launum...
Já nei það gengur ekki,  sagði ég og fauk smá í mig. Ég er nefnilega að taka aukavaktir því að mig vantar peninga, ekki útaf neinu öðru. Hún varð mjög hissa og ég hef á tilfinningunni að ég sé ekkert svakalega vinsæl í augnablikinu.
Hún sagðist ætla að gera það sem hún gæti...

Ég er líka brjáluð út í læknadæmið hérna.
Ég fór í lungnapróf í morgunn og var látin blása í vél.
Þegar það var búið og ég spurði hvað tæki svo við sagði lungnaprófskonan að hún skildi  bara gefa mér tíma hjá lækni og hann mundi svo útskýra fyrir mér hvað hefði komið út úr þessu öllu.
Gott mál sagði ég og sagði henni að ég vildi fara til Dr.Kjær. Það var jú hann sem ákvað að reyna að finna hvað væri að mér svo hann er í uppáhaldi hjá mér núna.
Já góðan daginn. Hann átti tíma eftir 5 vikur því hann er bæði vinsæll og læknar þurfa líka sumarfrí... í OKTOBER!!!
Með tárin í augunum bað ég um tíma hjá þessum nýja sem ég man ekki hvað heitir, en hann er líka vinsæll svo það var 2ja vikna bið.
Hágrátandi (smá ýkjur) samþykkti ég tíma hjá fíflinu honum Bentzon.

Annars er það að frétta af litlu fyrirbura kettlingunum að þeir dóu allir. Ein af öðrum, enda svo sem ekki við öðru að búast. Ég reyndi þó.
Nú liggur mamma þeirra hjá systrabörnunum sínum og elskar þá útaf lífinu. Mamma þeirra hún kisa fær ansi gott frí á meðan.

Well ætla að reyna að koma mér úr þessari fílu og reyna að leggja mig fyrir næturvaktina mína.
Knús á ykkur inn í daginn. Heart


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Sko Hulla mín, þegar kona skrifar konur eru konum verstar þá hætti ég að lesa.

Endurskoðaðu það viðhorf.  Hugsaðu um vinkonurnar, systurnar, frænkurnar, mömmurnar og ömmurnar sem styðja við og hafa gert í gegnum tíða, við hvor aðra.

Að því sögðu þá vil ég segja þér að þú ert dúlla.

Jenný Anna Baldursdóttir, 8.10.2008 kl. 10:36

2 Smámynd: Hulla Dan

Get ekki séð að það sé eitthvað betra ef karlmaður skrifar að konur séu konum verstar.
Er en brjáluð og æði hér um eins og tuddi og breyti engu að svo stöddu, og ég þarf ekkert að vera dúlla.
Skil bara ekki að sé leyfilegt að halda aftur laununum manns og reka mann svo ef maður ætlar að mótmæla með því að neita að mæta í vinnu fyrr en maður er búin að fá sín laun!!!

Þekki fullt af góðu fólki bæði konum og körlum og sé ekki að konur standi eitthvað upp úr með að styðja við bakið á manni.

GRRRRRRRR

Hulla Dan, 8.10.2008 kl. 10:42

3 identicon

Þetta eru greinilega fáránlegar reglur.  Þarf fólk í Danmörku sem sagt ekki peninga til að framfleyta sér?  Ég sé að þú ert sannur Íslendingur sem stendur fyrir sínu og lætur ekki vaða yfir þig. 

Baráttukveðjur

Guðbjörg Oddsd.

Guðbjörg O. (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 10:55

4 Smámynd: Líney

Þú hefur Víkingablóð í æðum,berst til síðasta  dropa  skil  lítið í þessum dönsku reglum  en sendi þér knús

Líney, 8.10.2008 kl. 11:07

5 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

Æi elsku dúllan mín, það er ekki alt gott í henni DANMÖRKU en samt betra en á klakanum, allavega fyrir þá sem ekki fá aumíngjastyrk frá Íslandi. Leiðinlegt með litlu kettlíngana

Kristín Gunnarsdóttir, 8.10.2008 kl. 13:54

6 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Veistu Hulla mín ad kærastinn min hann vinnur á mjög stórum vinnustad og er tetta nákvæmlega svona...tad tók mig langann tíma ad skilja hvernig tessum málum er háttad ....hann vinnur einmitt mjög oft aukavinnu og er a dfá tetta hibs og habs útborgad tó svo hann bidji um ad fá eftir hvern mánud.Hann vill nefnilega ekki eiga neitt inni hjá teim.

tetta er víst vída svona hér í dk og erfitt ad skilja.

Knús á tig  og gangi tér vel med málid.

Gudrún Hauksdótttir, 8.10.2008 kl. 14:40

7 Smámynd: María Guðmundsdóttir

jahérna..alltaf er ég ad læra eitthvad nýtt..! thetta vissi ég ekkert um ..og er búin ad vera ad taka grút af aukatímum ..flensufjandinn ad angra fóstrurnar...eins gott ad spjalla vid bossann um hvernig thetta er hjá okkur svo madur fái ekki á snúdinn eins og thú..en stattu bara á thinu, get nú ekki ímyndad mér ad thær vilji sjá á eftir thér 

vonandi ertu rólegri..og hefur thad betra nú..

María Guðmundsdóttir, 8.10.2008 kl. 15:10

8 identicon

Kannski finnst dönunum svona gaman í vinnunni að þeir þurfa ekki einu sinni kaup fyrir. Vinna bara aukavaktir af því það er svo gaman, gaman. Ekki von ef svo er, að þeir skilji það að íslendingar vilja og eru vanir því að fá kaup fyrir þá vinnu sem þeir inna af hendi.

Stattu á þínu Hulla mín - ekki veitir af að halda utanum sitt.

Knús til ykkar

Ragna (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 17:15

9 Smámynd: Rúna Guðfinnsdóttir

Gangi þér vel í þínum launahremmingum.   Leitt með kisunórurnar.

Kveðjur og knús!

Rúna Guðfinnsdóttir, 8.10.2008 kl. 22:25

10 identicon

Hullan mín, bara berjast, og ég stend með þér  

Nú fer ég bara í kröfugöngu, hvað á ég að skrifa á kröfuspjaldið.

Sem betur fer eru til svona víkingar enn, gangi þér vel skottið mitt. Skrýtnir þessir danir 

Ef þettað væri svona hérlendis spái ég því að ekki margir ynnu yfirvinnu, 3mán KRÆST.....

Kremj og knús.

Bina (IP-tala skráð) 9.10.2008 kl. 10:04

11 Smámynd: Sólveig Kristín Gunnarsdóttir

Thad er sumt  bara svo fáránlegt. Thau reka thig samt aldrei, thú ert eftirsóknarverdur starfskraftur sem thau geta verid thakklát fyrir. Thannig er thad med mørg størf í dag.  Gott ad thú stendur vid thitt.

Sólveig Kristín Gunnarsdóttir, 9.10.2008 kl. 20:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband