Færsluflokkur: Bloggar
25.2.2008 | 09:45
Orkulaus.
Ég er orkulaus með öllu í dag. Bara svo endalaust þreytt.
Samt skín sólin. Þessi elska.
Eina sem ég hef fengið út úr því í morgunn er að átta mig á að stofugluggarnir sem Eiki þreif að utan í síðustu viku og ég að innan á fimmtudagskvöldið eru skítugir.
Morguninn byrjaði klukkan 5:30 þegar við vöknuðum hálftíma of seint. Í stað þess að skutla Eika og strákunum í sama bíltúrnum, varð ég að keyra Eika fyrst, koma svo heim og smyrja nesti, (sem ég hefði getað gert í gærkvöldi, en nennti ekki) Vekja strumpana mína, sem voru voðalega fegnir að fá að lúra pínu lengur, finna íþróttadótið og handklæði (sem ég hefði bæðavei líka geta gert í gær) og koma þeim út í bíl og keyra í traffík til Blans.
Þvottafjallið (sem ég var ekki í stuði til að brjóta saman í gærkvöldi) var ekki horfið þegar ég kom inn í stofu í morgunn. Gremjulegt. En þegar strákarnir voru komnir á fætur byrjaði snarlega að minka í því þegar hinar ýmsu flíkur flugu í allar áttir.
Ég mátti hafa mig alla við að grípa sokka og peysur sem þutu yfir höfuðið á mér.
Ég skutlaði mér hvað eftir annað og skautaði á maganum yfir gólfið til að forða hreina þvottinum frá því að lenda á gólfinu.
Nú er ég búin að lufsast við að brjóta allt saman en dettur ekki til hugar að ganga frá honum.
Ætla að gera milljónustu tilraunina í dag til að fá karlmennina á heimilinu til að ganga frá sínum þvotti sjálfir.
Stundum dettur mér í hug að ég sé annaðhvort nautheimsk eða heimskulega þrjósk að nenna að standa í því. Nema bæði sé.
Ég er búin að eyða miklum tíma í að horfa út í loftið og út um gluggann í morgunn. Held að ég eigi eftir að spjara mig fínt á elliheimili þegar þar að kemur.
Ég dáist í raun og veru að því hvað ég er dugleg til að fá tímann til að líða án þess að gera handtak, ekki allir með þennan stórkostlega hæfileika.
Ef ég væri "klofin" mundi ég segja við hina mig.
"Drullastu til að taka þig saman og gera eitthvað kona!"
Og hin ég mundi svara.
" Hey op yours. Ég er að skoða veðrið."
og ég við hina eða öfugt. -eins gott ég sé ekki klofin, löngu búin að tapa þræðinum hver er hvað-
"Það rennur ekki í þér blóðið, Það er skelfing að sjá þig hengslast svona. Taktu járn eða eitthvað."
"Get lost."
Vá... Þá er ég amk kosti búin að komast að því að ef ég klofna einhvertíma þá er voðin vís. Er bara ekki að finna út úr þessu.
Nú ætla ég að reyna að afreka það að ryksuga stofuna og upp stigann... Ef ég gleymi mér ekki við að leita að ryksugunni...
Guð veri með mér í dag Mojn, Hulla Pulla hreingerningaróða... not!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.2.2008 | 17:25
Konudagurinn?
Ég held að það sé engin konudagur í dag í Danmörku. Allavega ekki hér í Bojskov.
Ég er búin að vera að vinna frá 7-3 og er bara vægast sagt uppgefin. Fékk engin blómst og ekkert nudd (ennþá) og ekkert heitt bað beið mín þegar ég kom heim.
Mér var reyndar boðið út að borða, en sé ekki fram á að komast vegna bensínleysis.
Eiki búinn að hvetja mig til að skella mér með, en sama hvernig ég reyni þá hefur bara ekkert bæst við bensínið bílnum. Gremjulegt.
Atli Haukur er búinn að vera að æfa sig í að taka upp af gólfunum án þess að nota hendurnar.
Þegar ég bendi honum á að það taki lengri tíma, þá fæ ég þau svör að hann þurfi allavega ekki að vera að beygja á sér lappirnar. Og belív jú mí, að taka sæng upp frá gólfinu án þess að beygja sig er bara pínu fyndin sjón.
Ég á frídag á morgunn og hinn. Sé alveg fram á að þeir fari báðir í tiltekt og þrif.
Ég get ekki sagt með góðri samvisku að það gleðji mitt litla hjarta. Mér finnst fátt leiðinlegra í þessari veröld en að hanga inni og taka til og þrífa. Geri það einungis af illir nauðsyn og svo líður mér svo skratta vel á eftir. Sérstaklega þegar strumparnir er komnir í rúmið og ég get kveikt á kertum út um allt og hellt mér rauðvíni í glas... og sofnað svo út frá því yfir auglýsingunum.
Langar miklu frekar að eyða tímanum mínum í eitthvað sem mér finnst skemmtilegt. T.d að lesa, eða hugsa, eða blogga, eða bara dagdreyma. Svo keypti ég mér striga fyrir jól sem ég á eftir að æfa mig á.
Ég er búin að mála 2 litlar myndir. Þær eru báða hver annarri ljótari, en ég hengdi þær samt báðar upp í forstofunni og ætla mér ekki að taka þær niður.
Það eru nefnilega alltaf málverkasýningar í vinnunni minni, þar hanga yfirleitt forljótar myndir sem kosta fáránlega mikið af peningum.
Ég er búin að verðsetja ljótu myndirnar mínar og á nú 2 málverk að verðmæti 2000 dk.
Striginn sem ég á eftir að mála á er risastór og það málverk -sama hversu ljótt það verður- er metið á 5000 dk.
Finnst ég einhvernvegin bara pínu rík í augnablikinu, jafnvel þó ég eigi ekki fyrir bensíni.
Well well. Hér bíður eftir mér fjall af þvotti sem er ekkert á leiðinni að hverfa
Knús. Hulla Pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
23.2.2008 | 17:29
veðurbreytingar fara BARA illa í mig. Dööö
Sko ég finn hjá mér óstöðvandi þörf til að tjá mig örlítið meira um svart fólk.
Í kommentunum frá síðustu færslu virtist vera einhver smá misskylngur í gangi, nema hjá Heidda.
Negri og Niggari er nebblega bara alls ekki það sama!
Ég meiri segja gekk svo langt að kíkja í orðabók. Bæði íslenska og dansk og í þetta sinn hef ég ekki rangt fyrir mér. Þarf alltof of að éta eitthvað ofaní mig.
Niggari er niðrandi og negri bara fallegt orð um svartan mann.
Verð einlega að kynnast einhverjum svörtum til að fá álit frá manni á fremsta bekk..
Óska hér með eftir einum þannig.
Lífið rennur hérna áfram hjá okkur eins og kekkjóttur grautur. Rigning í dag, sól á morgunn. Von á hita í næstu viku en búið að breyta því á morgunn.
Skyldu veðurfræðingar einhvertíma hugsa út í hvað þeir geta fokkað upp hverdagsleikanum hjá venjulegri Hullu með öllum þessum breytingu á veðri.
Farin að kveikja á kertum.... Knús á ykkur. Mojn, Hulla Pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.2.2008 | 10:13
Pæling.
Smápæling...
Notið þið orðið negri eða eitthvað annað þegar þið talið um svarta menn?
Ég spyr kannski voða kjánalega, en það virðist fara rosalega fyrir brjóstið á sumum (hvítum) þegar ég segi negri.
Ég tala aldrei niðrandi um svart fólk, þvert á móti finnst mér svart fólk ofboðslega heillandi og fallegt. Og mér finnst það meiri að segja hafa marga kosti yfir hvíta menn...
Allavega, hvaða orð notið þið?
Hulla hvíta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.2.2008 | 18:22
Tunglmyrkvi!
Hey nú veit ég hvaðég ætla að gera í nótt!!!
Róleg...
Fyrst ætla ég að leggjast á bæn og biðja fyrir stjörnubjörtum himmni... Í nótt.
Svo ætla ég að sofna yfir sjónvarpinu... Hrökkva svo upp um 3:53, pissa og rjúka út á verönd.
Verð með lopapeysuna tilbúna hjá hurðinni.
Þar ætla ég að standa til kl 4:51 og upplifa tunglmyrkva Það skal takast núna. Mér finnst ansi oft verða tunglmyrkvar en þeir eru bara alltaf á nóttunni, og þá er ég yfirleitt sofandi á mínu græna.
Mótmælandinn lét loksins vita af sér áðan.
Samt ekki fyrr en ég skrifaði honum hótunar email
Maður verður pínu worry... Gaf honum frest til að svara þar til í kvöld, en hann svaraði eftir 8 mínútur. Hann þurfti að sofa úti eina nótt, en það finnst mótmælendum og byltingarmönnum voða gaman.
------------------
Gott kvöld,,, Hull the Pull
Bloggar | Breytt 12.8.2008 kl. 18:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.2.2008 | 12:18
Vorið er komið :)
Já ég drakk hádegiskaffið mitt úti í dag. Sólin skín og fuglarnir singja -sumir skrækja reyndar- Hitamælirinn sýnir 10,5 gráður og ég get auðveldlega séð að biluð garðvinna bíður okkar.
Húsið mitt er stútfullt af kisum, þar sem allt er opið upp á gátt til að hleypa inn vorinu.
Ég verð bara svo glöð í svona góðu veðri.
Búin að vera að þrífa í allan dag og hlakka mikið til þegar ég loksins verð búin.
Atli Haukur og Júlíus byrjuðu í Budo Karate í gær. Júlli ekkert smá spenntur en ég varð nánast að draga Atla Hauk út. Hann var ekki að nenna, enda ekki mikið "nenn" hjá honum yfir höfuð.
Atlinn minn er það latur að þegar hann var í karate fyrir 2 árum síðan, nennti hann ekki að leggja sig fram í fyrstu beltagráðunni og "svindlaði" og var sá eini af 30 manns (held ég) sem náði ekki nýju belti. Það var ansi mikið högg fyrir minn mann því hann hefur alltaf komist upp með að vera latur.
Hann hefur notað "blikk blikk" augnaaðferðina og það hefur virkað hjá honum hingað til.
Ég og Lena biðum eftir þeim og fengum að horfa á fyrstu æfinguna.
þeir voru þvílíkt að standa sig drengirnir. Atli Haukur hefur greinilega engu gleymt síðan síðast og lagði sig allan fram. Júlli var svo einbeittur að tungan hékk niðra bringu næstum allan tíman.
Og þeir voru ekkert smá hamingjusamir þegar þessi fyrsta æfing var búin. Veit samt að ég þarf að draga Atla Hauk með á morgunn líka Þannig er bara Atli Haukur.
Um helgina er ég að spá í að dobla Eika til að byrja á að tæta upp matjurtargarðinn okkar.
Við erum ótrúlega duglegt fólk... fyrir tveimur árum byrjuðum við með fyrsta matjurtargarðinn okkar.
Það gekk ótrúlega vel. Við fylgdumst með þegar græn grös byrjuðu að kíkja upp á yfirborðið og töluðum um hvað við værum nú græn og vistvæn. Svo kom smá rigningartímabil... ca vika... og við íslendingarnir héldum okkur að sjálfsögðu innandyra á meðan, til að blotna nú alveg örugglega ekki.
Á meðan át illgresi garðinn okkar.
Í fyrra færðum við svo garðinn neðst í eitt hornið á garðinum (Garðurinn okkar er ca 1000 fermetrar svo nóg er plássið)
Eiki djöflaðist langt fram eftir mörg kvöld í röð við að tæta upp og rífa í burtu allskonar rætur og gera garðinn í gróðursetjanlegt stand.
Á meðan dúllaði frúin sér hérna inni við að koma til baunum og fræjum í pottum.
Svo fórum við og gróðursettum allt dótið hérna úti, ásamt kartöflum og einhverju fleiru.
Svo kom rigning, sem stóð reyndar yfir allt sumarið...
Nú ætlum við að kaupa okkur regnföt og reyna í 3ja sinn.
Eigið góðan dag. Hulla pulla
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.2.2008 | 20:29
Baráttumaðurinn farinn :(
Þá er baráttu og byltingarmaðurinn, frændi minn farinn.
Við keyrðum hann niður á aðalveg um kl 16:30 í dag. Ömurlegt að skilja litla frænda minn eftir þar aleinann. Ég fór samt ekkert að gráta. Fer eiginlega bara að gráta þegar ég kveð pabba. Enda pabbastelpa með eindæmum.
Haukur eldaði handa okkur í gær. Hann er nefnilega grænmetisæta, en því hafði ég gleymt allt um og var bara endalaust búin að velta fyrir mér hvaða gómsætu kjötrétti við gætum gefið vesalings utangarðsmanninum.
Fyrsta kvöldið vorum við með humarsúpu og frikkadellur. Heppin þar því Haukur borðaði humarsúpuna (enda dósasúpa og sennilega ekki einn einasti humarhali í henni) og svo steikti Eiki handa honum grænmeti og sauð pasta. Ekki spennandi það.
Allavega vildi Haukur endilega elda handa okkur rússakássu í gærkvöldi. Lofaði mér samt að það væri ekki einn einasti rússi í henni. Enda segir það sig svosem sjálft. Ég nota t.d engar ömmur í ömmukleinurnar mínar.
Rússakássan smakkaðist voða vel og ég nýtti meiri að segja afgangana í kvöld.
En þegar ég skildi hann frænda minn eftir aleinann út á aðalgötu leið mér alltí einu svo sorglega.
Langaði klukkutíma seinna að fara að tékka hvort hann væri þarna ennþá og taka hann bara með heim og bann honum að þvælast um alla heima og geima á puttanum.
En hann lofaði að skrifa mér email þegar hann kæmi til köben og láta mig vita af sér. Svo kemur hann kannski við aftur, því eftir einhver mótmæli í köben er förinni haldið til Ítalíu eða Spánar... á puttanum!Svona í lokin. Hatið mitt í dag er kolaofnar. Ég hata þá meira en allt annað í augnablikinu. Svo finnst mér gjörsamlega bara karlmannsverk að kveikja upp í þeim. En hálvitinn ég mútaði Eika að fara með Atla Hauk í klúbbinn í 2 tíma og lofaði í staðinn að gera allt í heiminum fyrir hann í staðinn, ég get sjálfri mér um kennt s.s.
Jú og Atli Haukur var dag 1 á svínabúinu í dag. Kom heim eftir 8 tímana með stjörnu í augum og skítugur og með endalaust af sögum af nýfæddum grísum. Bara hamingjusamur.
Mojn í bili. Hagið ykkur vel og passið ykkur vel.
Love ya all.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.2.2008 | 12:28
Sunnudagur
Ég var búin að skrifa rosalanga færslu hérna, en gleymdi að skrifa fyrirsögn, svo allt eyddist út... grrrrr. Ógeðslega pirrandi.
Allavega vinnupartýið var frábært. Heitir brauðréttir og brauðterta að hætti sannra íslendinga.
drukkið, sungið. Sungið, drukkið. Drukkið meira og skálað. Skálað, drukkið og dansað og svo í bæinn um hálf 3, og á Nelson.
Ég og Kirsten erum báðar haldnar smá "fjöldafólksfóbíu" svo við eyddum löngum tíma í að grafa okkur út af pöbbnum aftur.
Eftir ca 12 mínútna labb um götur Åbenrå á háum hælum, ákváðum við að viðurkenna háan aldur okkar og hringdum í Eika sem kom á mettíma og náði í okkur.
Dagurinn í gær sem átti að fara framm að mestu í rúminu, jafnvel í þynnku fór á annan veg. Ég var vöknuð um 9, alls ekki þunn, en reyndar smá þreytt. náði að leggja mig aftur um hálf tólf.
Þá hafði Jóa systir hinsvegar hringt og látið mig vita að Haukur frændi (sonur hennar) væri á leiðinni á puttanum frá Hamborg og til frænku sinnar (mín). Þar sem drengurinn ferðast alltaf um símalaus og vonlaust að ná í hann, var ekki um annað að gera en að bíða bara.
Ég varð líka pínu óróleg þar sem ég vissi að hún hafði gefið honum upp rangt heimilisfang
Allavega um 6 leitið rendi svo ókunnugur bíll í hlaðið hjá okkur og út stökk Haukur skellihlægjandi með dreddlokkana sína flögrandi í allar áttir.
Það er undarlegt hvað manni getur funndist annara manna börn heillandi þegar þau eru óhrein og sjúskuð og með dredda Og þegar litli frændi minn ákvað að eiginn frumkvæði að fara úr sokkunum sínum úti, af tillitsemi við okkur hin, bráðnaði ég bara.
Ekki hefði ég bráðnað ef þetta væri minn sonur.
Jói minn er pínu búinn að reyna að koma vitinu fyrir stóra frænda sinn. T.d með því að reyna að tala hann til að greiða sér.
Gekk gjörsamlega framm af 8 ára barninu þegar hann hreyrði að uppáhalds frændi hans hefði ekki notað sjampoo eða greitt sér í meira en ár.
Haukur er búinn að vera duglegur í morgunn. Náði í eldivið og kveikti upp.
Vaskaði allt upp án þess að nota sápu og hjálpaði mér svo við að koma draslinu í uppþvottavél heimilisins. Núna er Haukur að leika við Júlla úti.
Segi þetta gott í bili.
Mojn, Hulla pulla.
Bloggar | Breytt 12.8.2008 kl. 18:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.2.2008 | 16:44
Ætla að prófa hér.
Held að ég sé flutt hingað Nú erum við búin að vera á Central.is í nær 4 ár og gengið vel, amk við og við.
Ég er búin að vera að spá í að flytja síðan fyrir löngu síðan, en þar sem ég þoli ekki fluttninga þá hef ég ekki fengið mig til þess en. Þar til núna...
Vona að ég haldi þetta út.
Það sem ég kem til með að skrifa hérna eru mínar pælingar og mínar skoðanir. Ég hef ekki alltaf mikið vit á því sem ég skrifa um, en leyfi mér þrátt fyrir það að hafa skoðanir á öllu milli himins og jarðar. Ég leyfi mér líka að skipta um skoðanir eins oft og ég vil sem er stundum ogf oft fyrir suma.
Gott í bili. Er á leið í vinnupartý og er búin að ímynda mér að það verði skemmtilegast af öllu.
Mojn, Hulla pulla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)